Kirkjuritið - 01.01.1941, Page 46

Kirkjuritið - 01.01.1941, Page 46
40 Innlendar fréttir. Janúar. ábyrgð þeirra stofnana, er hann væri settur yfir, og kysi að láta lýðræðið ráða. En reynslan varð önnur að þessu sinni. Að vísu skipaði ráðherra þrjá þeirra, er flest fengu atkvæðin, séra Jón Thorarensen í Nesprestakalli, séra Garðar Svavarsson í Laugar- nesprestakalli og séra Sigurbjörn Einarsson i Hallgrimspresta- kalli, en bætti svo við séra Jakob Jónssyni, sem hafði hlotið færri atkvæði en séra Jón Auðuns og séra Sigurjón Árnason. Oessar gerðir sinar varði ráðherra með þvi, að hann hefði að lögum vald til þessa, og efar það enginn, ef aðeins er tekið tillit til bókstafs laganna, en hvorki anda þeirra né rótgróinna venja, svo sem að fara að tillögum biskups. Ennfremur taldi ráðherra það nmndu verða trúarlífi þjóðarinnar til eflingar, ef menn segðu sig' úr þjóðkirkjunni hér í höfuðstaðnum og stofnuðu frikirkju- söfnuði eða söfnuð. Hafa sumum þótt þau ummæli furðuleg og ábyrgðarlítil af kirkjumálaráðherra, sem á í hvívetna samkvæmt embættisskyldu sinni að gæta hags þjóðkirkjunnar. Kirkjuritið óskar, að úr þessum málum megi betur ráðast en að þessu leyti hefir verið til stofnað. Stofnun nýs fríkirkjusafnaðar í Reykjavík. Gremja ýmsra kjósenda séra Jóns Auðuns yfir framkomu veit- ingarvaldsins við hann hefir nú leitt til stofnunar fríkirkjusafn- aðar í Reykjavík. í honum eru full 6 hundruð manns. Séra Jón Auðuns er prestur hans. Gjafir til Háskólakapellunnar. N. N. 400 kr. Áheit 5 kr. S. 5 kr. Áheit Deodatus 5 kr. Þ. Á. 10 kr. S. 5 kr. G. E. 2 kr. A. 27 kr. S. P. 5 kr. N. N. 3 kr. Partí 14 kr. Húsnæðislaus 10 kr. H. 5 kr. N. N. i Canadn 29.75 kr. Frá sjómanni 100 kr. Ómar 5 kr. N. N. 50 kr. Frú Ingibjörg Guð- mundsson 20 kr. B. 1 kr. í gjafahirzlu 9.66. Alls gefnar kr. 701.75. — Kærar þakkir. Á. G. M. ,1. Leiðrétting. í síðasta versi III. kaflans í Ijóðinu „Faðir ljósanna“ eftir séra Helga Sveinsson, bls. 285 i októberhefti Kirkjuritsins f. á., hefir eitt orð misprentast. Versið á að vera svona: Já, kom þú með vordögg á viðinn, sem vex upp og rödd þinni hlýðir. Já, kom þú með eldinn, sem eyðir, ef askan skal frelsast um siðir.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.