Kirkjuritið - 01.04.1943, Blaðsíða 5

Kirkjuritið - 01.04.1943, Blaðsíða 5
KirkjuritiS. Sjóndeildarhringur kristindómsins. 115 En ekki verður sjónhringur trúar vorrar, sannarlegs kristin- dóms, tilkomuminni né þrengri, né sýnirnar um hann allan óveg- legri eða miður undrunar- og aðdáunarverðar, ef farið er, og komizt verður, upp á hæstu hæðina, hentugasta fjallið, sem þar er til; og þaðan horft í allar áttir, aftur fyrir sig, umhverfis og tram fyrir, upp og niður og allt í kring, með heilbrigðri sálar- sJon, að viðbættum sjónauka trúarinnar, við mestu og beztu birt- una, sem kristindómurinn á, og yfir höfuð er til í andans heimi. En hæsta hæðin, hæsta fjall kristindómsins, það er — upprisu grafarkletturinn lági, eða steinninn stóri, sem byrgt hafði steingröf endurlausnarans, innsiglaða og vörðum varða; en 'á þó, frá oltinn við galopna og tóma gröf hans á Páskadags- m°rgun, orðinn að sæti himneskra engla, sem lýstu hinn kross- festa upprisinn og eilíflega lifanda og dýrðlegan Drottin. Og kirtan, ljósið, sem lýsir sálar- og trúarsjóninni á og út frá þessari sjonarhæð, sjónarhæð upprisugrafarinnar, það er ljós uppris- unnar og lífsins, ljós alls þess sannleika, sem birtur er og staðfest- nr með upprisu Frelsarans. — Ofan af Heklu er sagt að sjáist yfir °K um nálega allt vort fjölbreytilega, mikilfenglega og fagra land, °S þykir það miþil og merkileg — já, ógleymanleg sjón. En ekki er það þó mikið hjá því, er sjá má frá upprisuklettinum. Því að baðan má sjá mikið víðar út í allar áttir, upp og niður, aftur á ^^k, umhverfis og áfram — endalaust. Þaðan má líta alla heima geima, öll lönd og höf, og haf tíma og eilífðar; yfir fortíð, nú- tið og framtíð; „í gegnum grafarhúm, í gegnum tíma og rúm“. „þar er svo bjart, að birtast huldir vegir“. Þaðan má eygja kjarma frá upphafi tilverunnar; þaðan má greina geislaspor guð- legrar forsjónar og vísdóms og gæzku vega hans. Þaðan má líta kimneskan kvöldroða hins jarðneska tíma og morgunroða eilífs Kfs blandast og renna saman á óumræðilega dýrðlegan hátt; vetr- arskuggar alls jarðardauðans marglitast og ljómast upp, eyðast og kverfa fyrir sumarsólarbirtu himneska eilífa lífsins. Frá upp- risugrafarklettinum, upprisufjallinu, sjáum vér aftur fyrir oss í tima og rúmi, allt að upphafi tilverunnar; skynjum umhverfis oss straum og tilgang sköpunarinnar, og horfum fram allt að endi- marki hennar. Þar sjáum vér, að skaparinn var, er og verður allt 1 öllu og öllum; að „frá honum og fyrir hann og til hans eru sllir hlutir“; eru allir út frá honum runnir í upphafi; fyrir vilja hans og kraft tilorðnir, viðhaldnir, og tilgangi hans þjónandi, og aftur til hans hverfandi að lokum. En tilganginn, vilja og ætlun skaparans, með öllu hans verki, stjórn og handleiðslu hans, fá-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.