Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 6

Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 6
116 Ófeigur Vigfússon: April. um vér að sjá, meðal margs annars, í þessu kristindómsorði: „Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“. Það er því alkærleiksdýrðarljómi, sem fyrir sálarsjón vorri leik- ur um og yfir orsök, tilgangi og takmarki allrar sköpunarinnar, ofar og utar en allt þetta marga og mikla skuggalega og ömur- lega í tilverunni, sem vér svo oft og víða sjáum og finnum svo sárt til næst oss, og Iíka innan um og saman við það, sem fagurt er og yndislegt, alveg eins og þegar himinsólin vor sést og finnst oft skína skær og hlý og fögur fyrir ofan eða bak við ský og skúraflóka, rykmekki og hríðarél, niðri á láglendinu, ef staðið er uppi á Heklu, og þó lægra sé; og eins og þá líka sólarljósið og ylurinn nær oftsinnis niður til vor, niður á láglendið, á milli élja eða innanum og gegnum ský og skúrir. En ef vér svo lítum nær oss, og horfum sérstaklega á allt þetta' dapurlega og dauðlega, raunalega og þjáningafulla, sem er og gerist, og sýnist endilega verða að fylgja lífinu „hér niðri á láði lágt“, eins og skugginn Hkama vorum, en höldum oss þó hátt uppi á sjónarhæð upprisunnar, þá sjáum vér, að ekkert er samt að óttast, og engu vonlaust að kvíða; því að fyrir utan og ofan þetta allt eru sjáanleg sól og sumar, er senda birtu og hlýju hing- að niður, með skýrri bendingu um, að allt þetta mótdræga, mæð- an öll og meinin jarðnesku, eru aðeins sem ský eða skuggar, sem hverfa öll á sínum tíma; og þó að þau haldizt lengi og loði við jörðina, þá munum vér þó sjálfir vonum bráðar „berast upp og yfir tjöldin skýja“, og þá „jarðarmyrkrin flýja, fyrir ljósi land- inu engla frá“; og að það mun að því koma, sem Drottinn Kristur sagði, að „eins og konan minnist ekki framar harmkvæla sinna, þegar hún hefir barnið fætt, svo munum vér líka gleyma öllum jarðlífskvölum vorum fyrir fagnaðar sakir, eða meta þær sem ekkert, þegar óumræðileg dýrð annars æðri heims birtist og veit- ist til fulls, fyrir hann og með honum, Drottni Kristi, upp úr sáluhjálplegu andláti voru, ef oss hér auðnast að lifa og deyja í Drottni vorum. í og með þessari sálar- og trúarsýn, ofan af sjónarhæð upp- risunnar, er og verður oss veitt hjálp og huggun, styrking og þrek í þrautum og raunum og baráttu þessa jarðlífs, og til þess að lifa svo, og síðan deyja, eins og vér, í upprisuljómanum líka sjáum, að þörf og nauðsyn er á, til þess í líkamsdauðanum eða upp úr honum, að mega rísa upp, hefjast upp til lífs í eilífu ljósi, í líking við sjálfan Lausnarann. En það er með upprisu hans

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.