Kirkjuritið - 01.04.1943, Síða 10
120
Ófeigur Vigfússon:
April.
andi, lifandi og starfandi, lýsandi og leiðandi, leitandi, finnandi
og frelsandi, og sendandi út postula hér á jörðu og engla í and-
anna heimi, til þess að tvístra og eyða öllu myrkri, mæðum og
meinum; allri illsku, eymd og kvölum, um síðir; eða til þess að
„tæma helvíti“, eins og svo ágætlega hefir verið að orði komizt
um líf og starf Drottins vors og allra hans sannra sendiboða, „tæma
helvíti“, bæði hér og hinum megin, allt þar til, að hann hefir dreg-
ið alla til sín, og orðin er ein hjörð og einn hirðir, einn Guð allt
í öllum, allur vetur og vetrarfaraldur horfinn, og komin eilíf
sumartíð, eins og vér æ um páskaleytið væntum, að jarðneski
veturinn vor, og myrkur hans og mein, muni bráðlega hverfa
fyrir blessuðu sumri og sumargæðum.
Slíkt og þvílíkt er því sjónarsvið vorra blessuðu trúarbragða,
hins sanna kristindóms, eins og hann er kenndur og sýndur ein-
faldur og háleitur, hreinn og heilagur af Kristi sjálfum, postulum
hans og lærisveinum í Nýja testamentinu, þegar um það er horfti
írá sjónarhæð uprisunnar, við alla blessaða birtuna frá henni,
með heilbrigðri sálarsjón og eðlilegum trúaraugum. Því að upp-
risan Drottins sannar öll hans orð, staðfestir kenning hans og
verk; og á henni byggjast, og við hana styðjast einnig orð og
verk postúla hans og allra beztu og sönnustu lærisveina hans
æ síðan.
‘ Finnst mönnum nú þetta sjónarsvið vera lítið og þröngt?
Finnst mönnum hér vera mjög lágt undir loft eða stutt milli
veggja? Geta menn með ré'ttu kallað oss, kristna menn, þröng-
sýna eða lágt og smátt hugsandi og horfandi, eða hégómlega trú-
andi, oss, sem sjáum allt þetta og horfum á það frá dýrðarhæð
upprisunnar? Eða finnst mönnum hér vera nokkuð um of eða
nokkuð van í þessari heimsmynd kristindómsins? Er nokkur þörf
á að draga nokkuð úr eða bæta nokkru við? Hver getur breytt
cða bætt um hjálpræðiskenningu og verk hans, sem sjálfur „reis
með dýrð frá dauða“, og leiddi með því í ljós eilíf sannindi orða)
sinna og verka?
Hátt lofuð og blessuð sé því meðal vor upprisan Drottins vors,l
og hann sjálfur að eilífu, ásamt Föðurnum, sem elskaði heiminn
svo mjög, að hann gaf honum sinn eingetinn son.
En þú, kæri kristni bróðir og systir, sem átt svo háan og víð-
an, bjartan og fagran sjóndeildarhring, himin svo háan, og heims-
mynd svo stóra og vegsamlega, sem nú er séð og sýnt, og sjónar-
hæðina í svo mikilli hæð og birtu, að þú færð af henni séð um
alla heima og geyma, ef þú ríst upp til að nota þér þessa hæð