Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 22

Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 22
132 Magnús Jónsson: Apríl. ið upp á sker, sem sjómenn vita ekki um eða sjá ekki við, eða annað komið fyrir, sem mannlegum mætti er ofvaxið. En sjómaðurinn gerir sína skyldu fyrir því. Og við eigum að gera okkar skyldu meðan tækifæri er til þess. ---------- Hér veltur því allt á manngildinu. Eigum við það nóg? Getum við aukið það og stutt það? Eða erum við ef til vill að tapa? Þetta eru spurningar, sem ekki er áhlaupaverk að svara. Bæði eru þær víðtækar og vandasamar, og auk þess mundu menn svara þeim mismunandi eftir því, hvaða mælikvarða þeir leggja á liugtakið manngildi. Skal ég ekki fara um það mörgum orðum að sinni. En eitt vildi ég minnast hér á, og það er þáttur kirkjunnar í þessu vandamáli. Það ber að liennar dvrum, og hún kemst ekki hjá því, að veita því áheyrn. Kristni hefir nú verið í landi hér um nálega þúsund ára skeið, eða mest alla þjóðaræfina. Allan þennan tíma hefir kirkjan verið það afl, sem hefir átt að gæta trúar og siðgæðis með þjóðinni. Allan þennan tíma hefir liún haft aðstöðu til þess að móta manngildi íslendinga. Mest af þessum tíma hefir hún, auk sjálfrar trúarhoðunarinn- ar, liaft með höndum fræðslumál og uppeldismál, að svo miklu leyti, sem þau eru þjóðfélagsmál. Langflestir af menntamönnum þjóðarinnar og leiðtogum í andleg- um efnum liafa verið þjónar kirkjunnar eða fengið menntun sína af höndum þjóna kirkjunnar. Hún kenndi Islendingum að lesa og skrifa í fyrstu. Hún réð bóka- kosti þeirra að mestu leyti. Fyrst eftir að prentlist kom i landið liafði kirkjan vald yfir allri hókaútgáfu. Og úr öllum prédikunarstólum kirkjunnar hefir hún talað til fólksins öld fram af öld. Að þessu leyti er arfur ís- lendinga arfur kirkjunnar, hvort sem hann er til sóma eða vansæmdar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.