Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 30

Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 30
140 Magnús Jónsson: April. æskilegasti her sem lnigsast getur í þeirri baráttu, sem þjóð okkar á nú fyrir höndum. Og prestarnir, þessir dreifðu starfsmenn kirkjunnar um allt land, eru kjörnir samverkamenn og leiðsagnarar. Mér er nær að halda, að ungmennafélögin muni yfirleitt fagna því, að fá þessa vehnenntuðu menn í samvinnu. Og' þá ættu prest- arnir ekki síður að fagna því, að fá þessa fallegu fylk- ingu til samstarfs. Ungmennafélögin ættu beinlínis að vera stafnbúar í þessari sókn. Ef hjá þeim sameinaðist sókn fyrir trúarlegum og þjóðlegum verðmætum, mættu þau verða verndarar föðurlandsins með kynslóð vorri. Þau gætu innt af liendi ekki ósvipað starf því, er flug- lið Englendinga innti af hendi eftir ófarirnar í Belgíu, þegar þessi —- ekki mjög fjölmenni — liópur bjargaði heimsveldinu hrezka. Þetta er aðeins dæmi. Það er svo margt af ungu fólki því miður, sem kýs sér óheppilegar leiðir nú á tímum, að það er kirkjunni beinlínis lífsspursmál, að eignast ítök, hvar sem það er unnt. Og það er mikið heilbrigt til líka. Það er ekki fátt ungt fólk, sem klífur fjöll og jökla meðan aðrir sitja í svælu og reyk, líkamlega og andlega. Margir leggja hér hönd á plóg og vinna hið góða verk. En kirkjan getur staðið eða fallið með því, hvort hún er starfandi kraftur eða ekki. Hún gæti orðið forustustofnun eins og hún hefir áður verið En það gæti líka farið svo, að menn þættust geta komizt af án hennar. Grein þessi er nú orðin lengri en í upphafi var til stofnað, og hefir þó sagt færra en hún átti að segja. En staðar skal nú nema. Hér er mál, sem mér finnst mjög tímabært. Þjóðin er á krossgötum. Líf hennar getur legið við. Kirkjan á afl- ið, sem um allt annað fram getur bjargað henni: Lif-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.