Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 32

Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 32
Apríl. Sigur krossins. Það, sem hér verður ritað, er að noklcru leyti þýðing, þó lausleg sé og ekki samfeld, úr bók eftir franska rit- höfundinn og dulspekinginn Edward Sclniré. Hann hef- ir ritað merka hók um lielztu trúarleiðtoga og trúar- bragðahöfunda, sem fram liafa komið með mannkyn- inu, og síðasti kafli hennar er um Jesú Krist. Bók þessi hefir verið gefin út yfir 20 sinnum á frönsku, en auk þess, að heita má, á tungumálum allra menningarþjóða heims, og hvarvetna vakið athygli, þó ekki geti allir fellt sig við, eða orðið sammála um skoðanir höfundar- ins og niðurstöður. Síðasti kafli bókarinnar, um Jesú Krist, er einkum eftirtektarverður vegna þess, að í skiln- ingi sínum á honum sameinast hjá höfundinum djúp og einlæg lotning fyrir Guðs-syninum, sem ekki kom í heiminn til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna öðrum og láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga, og svo hinsvegar dulrænn skilningur á persónu hans og starfi, og um leið nokkur álirif frá helgisögnum og fornri mystik kaþólskrar kirkju. Og liann heldur þvi jafn- framt fram, að það, sem kirkjum nútímans og irúai'lífi almennings standi mest fyrir þrifum, sé það, hve mikið af hinum dulrænu vísindum og liinum hreina sannleika, sem Jesús og aðrir Guði-vígðir andar hafi opinberað mannkyninu, hafi aftur glatazt og gleymzt. Sjálfur hyggst höfundurinn eiga hina fullkomu þekkingu og al- gera skilning, og geta leyst hverja þá gátu, sem fram að þessu hefir orðið mannkyninu torráðin, þegar um Jesú, persónu hans, kenningu og starf hefir verið að

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.