Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 35

Kirkjuritið - 01.04.1943, Page 35
Kirkjuritið. Sigur krossins. 145 heimsins“. Að visu efast Jóliannes síðar, og lætur þá sPyi’ja Jesú: Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars? En þessi vitrun Jóhannesar við Jórdan snart einnig viðkvæman streng í sálu Jesú. Og nú fylgi ég um stund bók Schuré orðrétt, nema með nokkrum úrfellingum: „Skyldi ég. vera Messías?“ Þessi spurning ómaði í sálu Jesú. Allt frá því að sjálfsvitund hans fyrst vakn- aði, hafði hann fundið Guð i sjálfum sér og sannfær- inguna um himnariki í Ijómandi fegurð þeirra sýna, sem honum birtust. Hörmungar mannlegrar eymdar höfðu lagst þungt á hann. Hann þekkti hina andlegu hnignun mannkynsins, en líka þrá þess eftir frelsara. En hvernig átti að hrífa það úr klóm glötunarinnar? Aftur og aftur sóttu á hann orð Skírarans: Sjá, Guðs- lambið, sem ber synd heimsins. Til þess að fá svar við þessu varð hann að sökkva sér niður í hin dýpstu fylgsni síns innra manns, Til þess dð geta það hvarf hánn út í einveru eyðimerkurinnar og fastaði þar i 40 daga og 40 nætur, eins og Mattheus segir frá i líkingarfullri helgisögn. PTeistingasagan segir í raun og veru frá þessum baráttumiklu hugbrigðum í lífi Jesú, þessari háleitu skoðanaraun sannleikans, sem allir spámenn og trúarliöfundar verða að hafa gengið gegnum, áður en þeir hefja starfsemi sína. Fyrir handan Engaddi lá bratt einstígi upp að helli nokkrum. Þegar þar var komið upp, var eins og maður hengi yfir ómælisdjúpi. Langt niður frá vottaði fyrir víngörðum og mannabústöðum; ennþá lengra burtu sást Dauðahafið og eyðifjöllin á Móab. Þarna settist Jesús að og hafðist við hina 40 daga. Þar sá hann fyrst i anda alla fortið mannkynsins. Hóm var sigurvegarinn og var i sýnilegri mynd það, sem persneskir vitringar höfðu kallað ríki Ahrimans, spámennirnir ríki Satans, dýrsmerkið, goðhelgun vonzk-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.