Kirkjuritið - 01.04.1943, Síða 36

Kirkjuritið - 01.04.1943, Síða 36
146 Friðrik J. Rafnar: Apríl. unnar. Myrkur grúfði yfir mannkyninu, sálu jarðarinn- ar. ísraelsþjóðin liafði fengið það hlutverk með Móse, konunglegt og' prestlegt í einu, að opinbera trúna á föð- urinn, iiina hreinu kenningu, birta liana öðrum þjóðum og leiða fram til sigurs. Höfðu nú konungar hennar og prestar fullnægt þessari köllun? Spámönnunum einum var þetta ljóst, og þeir svöruðu einum munni neitandi. Israel lá í fjörbrotum í faðmlögum Rómaveldis. Atti nú að reyna að gera uppreisn, eins og' svo oft hafði verið reynt áður, og eins og Farísearnir vildu enn, gera tilraun til að endurreisa með hervaldi veraldleg yfirráð ísraels? Átti liann að koma fram sem arfþegi Davíðs og segja með Jesaja: Ég vil kremja þjóðirnar í sundur í reiði minni, ég vil trufla þær og varpa styrlc þeirra til jarð- ar“. Atti liann að gerast nýr Makkabei og láta hrópa sig til prestakonungs? Hann vissi um þann fjölda Gvðinga, sem aðeins biðu eftir foringjanum. Og lijá sér fann hann kraftinn. En —■ mundi valdið buga valdið, eins og hér horfði við? Mundi sverðið nokkurn tíma ráða end- anlegum niðurlögum sverðsins? mundi það ekki miklu fremur auka makt myrkranna, sem alls staðar lá í leyni til þess að hremma bráð sína? Mundi ekki vera réttara að gera öllum opinberan þann sannleika, sem hingað til hafði verið eign og einka- réttur örfárra útvaldra, dulvísra manna, og opna hjört- un fyrir eftirvæntingunni eftir þeim tímum, þegar sann- leikurinn nær inn í skilning mannanna fyrir hina innri opinberun og vaxandi þekkingu? Eða með öðrum orð- um: Prédika guðríki fyrir þeim, sem liungrar í anda, láta ríki náðarinnar koma í stað lögmálsins, umbreyta mannkyninu hið innra og að fullu, með endurnýjungu liugarfarsins og endurfæðingu sálnanna? Hver skyldi þá bera sigurinn frá borði, Guð eða Sat- an? Andi vonzkunnar, sem drottnar á jörðunni vold- ugu alræði, eða hinn guðdómlegi andi, sem ræður yfir

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.