Kirkjuritið - 01.04.1946, Qupperneq 8
118
Ásmundur Guðmundsson:
Apríl-Maí.
izl með lærisveinum sinum í Betaniu. Þá brugguðu höfð-
ingjar í öldungaráðinu og Júdas lionum banaráð.
Á fimmtudagskvöld (i. apríl kom Jesús aftur til Jerú-
salem með lærisveinum sínum. Þeir neyttu saman liá-
tíðlegs kvöldverðar og minntust páskanna framundan.
Þá setli Jesús heilaga kvöldmállíð.
Um miðnætti, aðfaranótt íostudagsins 7. apríl, héldu
Jesús og lærisveinar hans í náttstað, lil Getsemane. Þar
var hann handtekinn nokkuru fyrir óttu, leiddur fyrir
öldungaráðið um miðjan morgun og stundu siðar fvrir
Pílatus. Um dagmál var liann krossfestur og andaðist
um nón. Skömniu fyrir dagsetur var hann greftraður.
Laugardaginn, 8. april, liéldu allir kyrru fvrir í Jerú-
salem. Þá var tviheilagt með Gyðingum, 1. páskadagur
og sabbat.
Svo rann upp binn fyrsti kristni páskadagur, drott-
insdagurinn 9. apríl.
Nokkurar konur standa um sólarupprás i garði Jósefs
frá Arimaþeu lítið eitl vestur af Golgata fyrir framan
opna gröf Jesú og skjálfa af helg'um ótta við upprisu-
boðskapinn: „Leitið þér að Jesú, Nazareanum kross-
festa. Hann er upprisinn. Hann er ekki hér. Sjá, þarna
er staðurinn, J)ar sem Jjeir lögðu hann“. Sjálfur birtist
Jesús að sögn guðspjallamannanna og Páls postula samá
dag: Símoni Pétri, Maríu frá Magdala, tveimur læri-
sveinum á Emmausgöngu, hinum tólf. Páskalofsöngur-
inn ijrýzt fram: Sannarlega er drottinn upprisinn.
II.
En er hér sannsögulegra atburða að minnast? Svo
befir veri spurt Jjegar frá upphafi. Boðskapur kvenn-
anna, er komu frá gröf Jesú, var í fyrstu talinn hégómá-
J)vaður, og þegar þar kom í ræðu Páls postula á Ares-
arhæð, að liann nel'ndi upprisu manns frá dauðum, þá
létu AJjenumenn sér fátl um finnast og töldu nóg kom-
ið lijá honum að sinni. Það er fjarri mér að áfellast nökk-
urn mann fvrir J)essa spurningu. Vér mennirnir efum