Kirkjuritið - 01.04.1946, Side 12

Kirkjuritið - 01.04.1946, Side 12
122 Páskar. ApHl-Maí. Og brolning krauðsins, sem fer fram til minning'ar um dauða Jesú, er ekki sorgarathöfn lieldur fagnaðar. Upprisan bregður ljóma yfir hana. Ivirkjan, Nýja testamentið, drottinsdaguririn og-kvöld- máltíðarsakramentið votta öll í þessimi efrium eitt og hið sama. Eru þetta ekki gild rök? Flytja þau ekki boðskapinn forna: Vertu ekki vantrúaður, heldur trúaður? III. Oft veitist örðugt að trúa, á Guð kærleikans, lífið, sig- ur hins góða — allt þetta, sem upprisa Jesú hoðar, ekki sízt nú, er liinn langi frjádagur liefir gengið yfir mann- kvnið og einnig þjóð vor beðið marga og þungá harma. En framtíðarheill vor mannanna allra er undir því komin, að vér þorum að horfa í trú til himins upp frá dauðans val, sjáum páskasólina sundra helskýjunum og lieyrum í anda boðskapinn: Hann er upprisinn. Ýmsum kann að verða mjög erfitt að stiga það trúar- skref, en margfallt erfiðara er að stíga það ekki. Lif i vantrú er aumkunarvert líf. Einn vormorguninn gekk ég hér fram með Tjörninni. Hana Iiafði lagl um nóttina. Andahóparnir stóðu hnípn- ir á ísnurii eða drögnuðust áfram veikum burðum og' fáránlegum. Tilveran var eins og einhvern veginn geng- in úr liði fyrir þeim. Engin vök. Eriginn kostur þess að geta lálið svalar bárur leika um brjóstið og liðið áfram frjálst og fagurlega við lilíðu vorsins. Mér fannst lif mannanna, er trúna þrýtur, líkt þess- ari mynd, og vitfirring mannkynsins hin síðustu ár stóð mér átakanlega fyrir hugarsjónum. Þegar lindirnar frjósa, eru allar bjargir bannaðar. En eflir föstudaginn langa kemur páskadagur og páskahátíð. Þeyr vorsins fer yfir með þungum þyt, sum- ar rennur að lokum friðar og bræðralags eftir fimbul- vetur mannkynsins. Öðru vísi getur það ekki orðið,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.