Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 21

Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 21
KirkjuritiÖ. í ríki friðaríns. 131 A slíkum kirkjuskóla, er ég minntist á, ætti aðalnám- í stuttu máli að vera: Biblíufræðsla og landþekking. Mundi það veita hinum ungu trausta undirstöðu til þess að eignast heilbrigða lífsstefnu og hrein og há sjón- arinið. Það er nauðsynlegt að fá að þekkja Biblíuna vel, og alla. Og ganga ekki fram hjá Gamla testamentinu, eins °g gert er. Biblian er trúarjátning vor. Hún kennir oss fyrir Jesúm Krist að þekkja Guð, og lilgang' lians með °ss mennina. Hún er ábyrgasta veraldarsagan, sem rit- l>ð hefir verið, af því að hún skýrir frá því, sem var, er °g verður. Og nauðug viljug verður mannkynssagan að undirskrifa orð Bitningarinnar, jafnóðum og þau konia fram. Það er ekki rétt að g'anga frambjá Gamla testament- lnu, eins og margir kristinfræðarar gera. Þar er svo margt að finna, er gevmir liin dýpstu lífssannindi, sem a við alla tima. „Það gláir í götunni gull“, hvar sem Hett er upp í hinum lielgu bókum Mósesar. Enginn sem setlar að grafa eftir gulli, birðir ruslið fyrst, beldur gullið sjálft. þar er svo margt að læra, fyrir hina ungu, af undirstöðu sannindum lífsins. Hin takmarkalausa hlýðni og lotning við Guðs vilja, á það máske ekkert erindi til vor? ^eir eru væntanlega ekki margir stjórnmálamenn- irnir, fyr og síðar, er hafa haft vit og þor til þess að setja stjórnmálin eins skýrt og ákveðið á grundvöll trú- arinnar, sem Móse gerði. Hann, sem ekki gleymdi mun- aðarleysingjum, ekkjum, útlendingum og þrælbundnu fólki, í löggjöf sinni. Göngum ekki fram hjá dyrum Móse. Heldur staðnæm- umst og spyrjum um gömlu göturnar. í anda getur að títa lietjuna, leiðtogann mikla, þar sem hann stendur nieð Guðs staf í hendi, og heldur uppi liinni ægiþrungnu Inynd, valinu mikla: Hamingju eða óhamingju, er fylgja mun öllu mannkyni til hinztu tilveru.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.