Kirkjuritið - 01.04.1946, Síða 24
Apríl-Mai,
Sálmur.
Sbr. 1. Kon. 19, 11—12.
I stormum og eldingum aldrei þú býrð,
né eyðingar dynjandi hríðum,
þú almættis-tignin, sem ei verður skýrð
en umlykur blómið í geislanna dýrð
og kemur í blævindi biíðum.
Þú kemur í blænum og líður um lönd
í ljóði, sem englarnir sungu. —
Þú kemur með friðinn og frelsið í hönd
og fanganum lausn, er var hnepptur i bönd
af ánauðar-okinu þungu.
Þá, kom þú í blænum, að binda um sár
og blessa’ yfir harmana þungu.
Legg miskunnarhönd yfir mannanna brár, —
þú megnar að þerra hvert alheimsins tár
með líknarmál lífsins á tungu.
Já, kom þú í blænuni með kærleikans mátt
nteð kraft hans og ljós út um geyminn,
með sólroðans dýrð yfir dimmustu nátt,
með dagrenning friðarins, bróðerni’ og sátt
og Guðs ríki’ um gjörvallan heiminn.
Þú hlustar í blænum á bliknandi rós
og bænarmáls andvarpið hinzta. —
Við hnígandi sól, þegar húmar við ós,
í hönd þína fel ég mitt slokknandi ljós. —
Þú mannst eftir barninu minnsta.
Halla Loftsdóttir.