Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 30

Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 30
140 Magnús Helgason: Apríl-Maí. muna náms og langrar lífsreynslu hefir verið fær um að leggja yður iieilræði bæði í andlegum og veraldleg- um efnum, að þér yfir höfuð iiafið misst mann, sem var sómi stéttar sinnar i öllum greinum. Það er því vor- kunn, þótt þér gerið allharðar kröfur til eftirmanns lians. En þar sem þér hafið slíkan mann misst, þá hefði það verið frábær heppnj, ef þér hefðuð fengið jafningja hans, og þess vil ég hiðja yður vel að gæta. Samt sem áður hljótið þér að finna því hetur til ófullkomleika míns sem fyrirrennari minn var fullkomnari; en ég segi yður það satt, að enginn getur fundið betur til þess en ég sjálfur, liversu mikinn vanda ég tekst á hend- ur, og hversu margt mig skortir til þess að hera hann sem skyldi, en ég vil setja traust mitt til hans, sem i veikum er máttugur, og biðja hann að láta mér aldrei úr minni líða þann ásetning að gegna störfum mínum eftir beztu samvizku og að gefa mér krafta lil að efna hann. Það er minn einlægur ásetningur, að kenna yður í ræðum mínum kristilegan sannleika, svo ómengaðan sem mér er unnt. En þér munuð máske spvrja, livað er sannleikur? Því á því eru ýmsar skoðanir, og heims- ins mestu spekingar hafa leitað hans i ýmsum áttuxn og þólzt finna hann í ýmsum stöðum, en sá sannleiki, sem ég tala um, finnst ómengaður og lireinn i kenn- ingu Jesú Ki'ists og postula hans í heilagri Ritningu, sá sannleikur, að vér eigum föður á himnum almáttugan og algóðan, sem gætir vor og verndar oss, að hann hefir sent sinn son oss synduga menn sáluhólpna að gjöra, og að hann í öðru lífi geldur sérhverjum éftir hans verðleikum. Það er sá grundvöllur, senx ei má raska, grundvöllur, er ei má annan leggja, ofan á þenn- an grundvöll hafa menn byggt á ýmsan hátt, en við öll mannaverk loðir einliver breyskleiki meiri og minni. Á þessum grundvelli hefir Krists kirkja staðið óhögg- uð um margar aldir. Af þessum grundvelli hafa sprott-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.