Kirkjuritið - 01.04.1946, Side 44
154
Síðustu sefpappírshandrit.
Apríl-Maí.
er á Jóliannesar guðspjalli. Stafar sú liking annaðhvorl
af því, að báðir höfundarnir hafa stuðzt við sameigin-
lega heimild, eða höfundur Jóhannesarguðspjalls hefir
liaft ókunna guðspjallið að heimild eða öfugt. Skyld-
leikinn við Jóhannesarguðspjall bendir til þess, að það
sé einnig runnið frá erfikenningunni í Efesus.
Sagan um lækningu af líkþrá, sem er í Mark. 1,10—42,
hljóðar svo í ókunna guðspjallinu:
„Þeir réðu mannfjöldanum til þess að bera steinana saman
og grýta hann. Og teiðtogarnir leituðust við að leggja hendur
á hann, svo að þeir gætu tekið hann og aflient mannfjöldan-
um, og þeir gótu ekki tekið liann, af því að stundin var enn
ekki komin, að hann yrði svikinn. En liann sjálfur, drottinn,
gekk lit mitt á meðal þeirra og skildi við þá. Og sjá, líkþrái mað-
urinn kemur til hans og segir: Meistari Jesú, þegar ég var á
ferð með likþráum mönnum og át með þeim i veitingahúsinu,
varð ég sjálfur einnig holdsveikur. Ef þú villt, þá verð ég hreinn.
Drottinn sagði þá við hann: Eg vil. Vertu hreinn. Og þegar í
slað hvarf líkþráin frá honum. Og Drottinn sagði við liann:
Far og sýn þig prestunum .....“
U])])haf þessarar frásögu minnir á vers í Jóhannesar-
guðspjalli. Og eitt er nýtt: Líkþrái maðurinn rökstyður
bæn sína með því að skírskota til þess, að hann hal'i
tekið veikina við samvistir við holdsveika menn.
Sagan um skattpeninginn er allfrábrugðin Mark 12,
13—17 og liliðstæðum:
„Þeir komu til hans og tóku að freista lians með spurningu
og sögðu: Meistari Jesú. Vér vitum, að þú ert kominn frá Guði,
því að verkin, sem þú gerir, bera þér enn æðra vitni en allii'
spámennirnir. Seg oss því: Er rétt að gjalda konungum það,
sem ríksstjórn þeirra ber? Eigum vér að gjalda þeim eða ekki?
En Jesús vissi hugsanir þeirra, varð gramur og sagði við þá:
Hversvegna kallið þér inig með munni yðar meistara, er þér
hlýðið því eigi, sem ég segi? Vel spáði Jesaja um yður, er hann
segir: Þessi Iýður heiðrar mig með vörum sinum, en lijarta
þeirra er langt frá mér. Til einskis tigna þeir mig, er þeir kenna
lærdóma, boðorð manna ......“