Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 54

Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 54
Apríl-Maí. Friðarmál, Verða mennirnir aldrei svo þroskaðir, að þeir geti gert út um deilumál sín án vopnaviðskipta? Er ekki mögulegt að finna nein ráð til þess, að aí'- stýra ófriðarbölinu, eða a. m. k. draga mikið úr því og öllum þeim hörmungum, sem því fvlgja? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að fjölda marg- ir mætir menn liafa barizt af öllum mætti fyrir friðar- hugsjóninni, og þjóðabandálagið var beinlínis stofnað í þeim lilgangi að vernda friðinn. Margar milljónir manna væntu mikils af þvi, en vonbrigðin urðu átakan- leg: Þjóðabandalagið reyndist alls ekki fært uin að vernda smáþjóðirnar fyrir yfirgangi hinna lierskáu stórvelda. Hér þurfa sterkari öfl að laka i taumana, svo að sá hluti mannkynsins, sem lifir af seinustu heimsstyrjöld, þurfi ekki að óttast nýja styrjöld á næstu árum. I erindi, sem próf. Richard Beck flutti fyrir nokkru á kirkjuþingi Hins evangeliska kirkjufélags í Vestur- heimi, færði hann ótvíræð rök fyrir því, að engri stofn- un á jörðu ættu friðarmálin að standa nær heldur en kristinni kirkju. Mikið rétt. Og engri stofnun er betur treystandi til þeirra hluta en henni, ef hún sameinast um þetta mál. En livernig á að ná þeirri sameiningu? Hver á að hefj- ast handa? Mundi íslenzka kirkjan fá nokkru áorkað? Mundu tillögur liennar, sem líklega er minnsta kirkja heimsins, nokkuð verða teknar til greina? Þó við séum fáir, fátækir og smáir, þá er þó íslenzka kirkjan fullveðja og á að taka sínar ákvarðanir eins i

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.