Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 58

Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 58
168 Apríl-Mai. XI. The Lutheran Free Church. XII. The Missouri Synod. Efninu virðast gerð mjög góð skil, svo að telja niá á- gæta söguheimild. Mun þetta fyrsta samfelda ritið á þessu sviði, og hefir séra Valdhnar unnið þarna merki- legt hrautryðjandastarf. Er það ánægjulegt, að íslend- ingur skuli verða fyrstur til þess og leysa verkið svo vel af hendi, sem raun er á orðin. Eins og að líkindum lætur, varð mér fyrst fyrir að lesa kaflan/n um landa mína, og þótti mér lýsingin á kristnilífi þeirra og starfi sanngjarnleg, hófstillt og skemmtileg. Er það aðal höfundar að leitast hvar- vetna við að leiða það í ljós, er hann veit sannast og réttast, en forðast hleypidóma. Skilningur hans á mönn- um og málefnum virðist mér góður, og hefir hann oft þá aðferð að láta verkin tala í stað Jiess að kveða sjálf- ur upp dóma. Það ætlar hann lesendanum að gjöra út frá þeim gögnum, sem hann leggur fram fyrir hann. Um erlendu kirkjufélögin er höf. að vonum fáorðari, en þó má fá ljósa liugmynd um þau af frásögn ha'ns og mikinn fróðleik. Má gjöra ráð fyrir því, að bókin verði mikið keypt og lesin i Kanada, og hingað á hún einnig erindi, ekki sízt vegna kaflans um kirkjulegt starf íslendinga. Höf. hefir unnið ])arft og gotl starf með riti sínu. Á. G.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.