Kirkjuritið - 01.01.1954, Blaðsíða 51
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfundur
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 12. júní 1954 og hefst kl. 1.30 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstand-
andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til
samþykktar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des-
ember 1953 og efnahagsreikning með athugasemdum
endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úr-
skurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna i stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 8.—10. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir
umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri
umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetn-
ingar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en
2. júní 1954.
Reykjavík, 22. desember 1953.
STJÓRNIN.