Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 7

Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 7
KIRKJURITIÐ 53 Hér erum vér stödd á vegamótum og þurfum að nema stað- að og spyrja: Hver er hamingjuleiðin ? Borgar það sig fyrir þrjátíu silfurpeninga að svíkja allt, sem guðdómlegt er, og um leið allt, sem mannlegt er í okkur? Því að hann, sem kynslóð- irnar hafa tilbeðið: Kristur, höfundur og fullkomnari trúar- innar, var um leið vor æðsta mannshugsjón, allt sem vér þekkt- um æðst að fegurð og göfugleik. Quo vadis? Hvert ferðu? Liggur vegurinn þangað, sem hvorki er til miskunn eða sannleikur né neitt það, sem píslarvottar frumkristninnar lögðu líf sitt í sölurnar fyrir? Þangað, sem múgurinn er viljalaus og einstaklingurinn áhrifalaus, en harð- stjórinn einn skipar fyrir um, hvernig hugsa megi í dag, hvern hata skuli og hvern taka af lífi, kannske stallbróðurinn frá í gær? Þangað, sem maðurinn hættir að vera Guðs barn, en er orðinn að skepnu á ný?“ Píslarvœtti dýrlinganna. „Hrollur fór um mig, þar sem ég sat í þessari litlu kirkju, sem geymir miningarnar um Pétur postula," heldur læknirinn áfram. ,Ég hugsaði um píslarvættisdauða þessa fornhelga dýr- lings og um allar grafirnar niðri í katakombunum, þar sem sjá mátti skinin bein þeirra hugrökku manna og kvenna forn- kirkjunnar, sem kusu heldur dauðann en beygja kné sín fyrir siðspilltum harðstjórum þeirra tíma. Og alls hugar þráði sál mín það, að einnig vér mættum verða gripin af sams konar brennandi hrifningu fyrir náðinni og sannleikanum, sem kom fyrir Jsúm Krist, sama óttaleysinu í lífi og dauða. Því að hræðslan er það, sem beygir bök fjöldans undir þrældómsokið. Með ógnunum og skelfingum reyna allir harðstjórar að festa sig í sessi. En þar, sem andinn er reiðu- búinn, duga hvorki villidýr né píslartæki gegn honum, þar brotnar vald myrkursins. Eins og tárhreint blóm sprettur upp úr leirflagi, þannig spratt kristnin upp úr gerspilltu þjóðfélagi rómversku keisaranna, fá- einir umkomulausir menn sigruðu heilt heimsveldi hertygjaðir niætti andans einum saman.“ Draumurinn um friö á jöröu. „Ef vér ættum enn þá þessa brennandi trú á ríki Guðs, sem

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.