Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Qupperneq 10

Kirkjuritið - 01.02.1961, Qupperneq 10
56 KIRKJURITIÐ er háð um veraldargæði ein, sem aldrei stilla þrá sálarinnar né svala andlegum þorsta vorum eftir fegurð og sannleika? Allir, sem sannleikans leita, hafa farið mörg gönuskeið. Enginn er svo fullkominn, að honum geti ekki skeikað í mörgu. Það er því andlegt dramb af verstu tegund að geta ekki yfir- gefið veg, sem vér fyrir löngu höfum grun um, að ekki leiði til neinnar farsældar, aðeins af því, að oss þykir minnkun að því að leiðrétta oss sjálf. Gætum að því, að aðalatriðið er að kom- ast að réttu marki. Vér svíkjum alla og mest sjálfa oss með því að flana af stífni einni út í ógæfuna, eftir að oss mátti ljóst verða, hvert vegurinn liggur. Stööuc,f iörun og yfirbót. Líf kristins manns á að vera stöðug iðrun og yfirbót, sagði Lúther. Þetta eru viturleg orð. Iðrunin er ekki fyrst og fremst fólgin í volæði, heldur því að hafa manndóm til að breyta lífs- stefnunni, er vér sjáum, að annar vegur er betri. Margur lendir á rangri braut, ekki af illvilja, heldur af reynsluleysi og gagnrýnisskorti, hyggur jafnvel að hann sé að vinna mannkyninu gagn. Slíkum mönnum verður því ekki allt- af villa þeirra til ranglætis reiknuð. Hitt er aftur ámælisvert að vilja ekki og vera ekki ávallt reiðubúinn í fullri einlægni og með fölskvalausri sannleiksást að endurskoða lífsstefnu sína. Það er óviturlegt, því að áður en varir lenda slíkir menn út í það foræði ofstækinnar, þar sem ranglætið og ofbeldið er sett skör hærra sannleikanum, og sá vegur endar í ógöngum. Það er því gott að staðnæmast á vegamótum hvers nýs árs og reyna þar í algerri hreinskilni að gera upp lífsreikning sinn að nýju og athuga, hvort það var hamingjuleið, sem vér geng- um. Slysaferill fortíðarinnar kann að hafa orðið oss erfiður og til hugraunar, en mun það ekki stafa af því, að vér vorum ekki nógu athugul og auðmjúk fyrir Guði, vér höfum gleymt því að spyrja hann, hver væri hamingjuleiðin, vér höfum jafnvel gleymt, hver er gjafari allra tímanlegra og eilífra hluta: Guð sjálfur. Frá honum, fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Benjamín Kristjánsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.