Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 8

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 8
54 KIRKJURITIÐ á að koma„ ríki fórnarinnar, miskunnsemdanna og bróðurelsk- unnar, þá væri líka nóg viðreisnar von áttavilltu mannkyni. Þá mundi sú endurfæðing eiga sér stað, sem brenndi hatrið og vonzkuna eins og sora úr sálum mannanna, þessa illsku, sem sprottin er af skammsýnni sjálfselsku og ótta. Þá mundu valda- stólar harðstjóranna hrynja og allar kynkvíslir jarðar taka höndum saman og styðja hver aðra til þess að draumurinn um frið á jörðu megi rætast. Þetta er eina von mannanna, eini ljósgeislinn í myrkrinu. Veröldin verður aldrei umbætt með grimmd og ofbeldi. Sagan hefur ávallt sannað þau orð, að hver, sem vegur með sverði, mun falla fyrir sverði. Sé um byltingu að ræða, verður hún fyrst að byrja heima hjá hverjum einstökum manni. Ef það er raunverulega ætlun vor að gera þjóðfélagið betra, ættum vér að byrja á oss sjálfum,, því að þar er oss í nokkurt sjálfsvald sett að vænta árangurs. En ef vér getum ekki bætt sjálfa oss, hvaða von er þá til, að vér bætum aðra? Þá fyrst, þegar hver maður fylgir rödd samvizku sinnar og gerir það, sem vera má öðrum til fyrirmyndar, erum vér á réttri leið. Ekki fyrr.“ Guöstrú er vísindi. „Takmark siðaðs mannfélags er að útrýma hatri, grimmd og valdagirnd, en efla i þess stað góðvild og réttlæti. Sama er, hvaða trú vér játum, ef vér stefnum að þessu marki, en eng- inn stefnir þó í þessa átt heils hugar án guðstrúar. Sumir skammast sín fyrir að trúa á Guð, af því að þeir halda, að það samrýmist ekki vísindum nútímans. Það er óhætt að segja það undir eins, að algert trúleysi er miklu óvísindalegra, af þeirri ástæðu m. a„ að það samrýmist miklu verr staðreynd- um lífsins. Sérhver lifandi vera vex upp og nærist á traustinu til skaparans. Þegar mennirnir hætta að treysta Guði og taka að trúa á mátt sinn og megin, tæknina og þægindin, verður sál þeirra gripin slíkri örvænting og tómleikakennd, að þeir fara brátt að trúa á pólitískar kreddur eða ótínda harðstjóra til að eiga einhvers staðar höfði sínu að að halla. Guðstrúin er kraftur, sem eigi aðeins miðlar andlegum auði, hamingju og sálarfriði, heldur vekur hún einnig skilning manna á meðal og stuðlar að bræðalagi allra manna.“

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.