Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 19

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 19
Þjóðkirkjan og ríkið. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup er orðheppinn maður. Eru á vörum almennings mörg glettin tilsvör eignuð honum. Flest em spakmæli þessi vafalaust rétt feðruð, en almannarómur eignar fyndnum mönnum fleiri snilliyrði heldur en þeir hafa sagt. Ein af gamansömum sögum, sem séra Bjarna er eignuð, er á þessa leið: Eitt sinn hafði íslendingur orðið kirkjumálaráðherra án þess að hafa sýnilega búið sig undir þann vanda með sérstökum lærdómi. Dag einn mætir þessi ráðherra séra Bjarna á götu og spyr, hvort það sé rétt, að hann sé hættur að biðja fyrir stjórn- inni við messu í Dómkirkjunni. „Þetta getur ekki verið rétt,“ segir vígslubiskup, „því að það er miklu meiri þörf að biðja fyrir stjórninni, ef hún er mjög ófullkomin, heldur en fyrir miög góðri stjórn.“ Þegar ég var kirkjumálaráðherra fyrir nokkrum áratugum var ég einn af þeim mönnum, sem ekki hafði mikinn undir- búning til að gegna því vandasama starfi. Samt fannst mér ekki við unandi að sýna ekki málum þjóðkirkjunnar öllu meiri umhyggju heldur en Alþingi og landsstjórnin höfðu gert á undanförnum árum. Til að geta hrundið í framkvæmd nokkr- um umbótum, setti ég sérstaka kirkjumálanefnd til að undir- búa frumvörp, þar sem mætt var nokkru af réttmætum ósk- um þjóðkirkjunnar. Nefndarmenn voru fimm: Séra Jón Guðna- son, Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri. Runólfur Björnsson bóndi á Kornsá, séra Sveinbjörn Högnason og séra Þorsteinn Briem. Val nefndarmanna var miðað við, að þar ættu sæti nokkrir af höfuðklerkum þjóðkirkjunnar og tveir mjög greind- ir og vel menntir leikmenn. Séra Þorsteinn Briem var formað- ur nefndarinnar. Hann var þá fyrir margra hluta sakir talinn einhver fremsti maður í fylkingu þjóðkirkjuprestanna. Kirkjumálanefndin tók brátt til starfa og vann mikið verk °g gott á nokkrum mánuðum árin 1929—30. Nefndarmenn 5

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.