Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 29

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 29
Séra Sigtryggur Guðlaugsson. F. 27. sept. 1862. — D. 3. ágúst 1959. Talið er, að N. T. S. Grundtvig hafi ort 1431 sálm. í íslenzku þýð- ingunni byrjar hinn fyrsti þannig: Ó, hve dýrðlegt er að sjá alstirnd himinfesting blá, þar sem ljósin gullnu glitra, glöðu leika brosi’ og titra :|: og oss benda upp til sín. :|: Hér er þegar sleginn sá streng- ur, er ómar gegnum allan skáld- skap Grundtvigs og kenningu: Sköpunarverkið er dásamlegt og það bendir okkur á Guð, höfund sinn og kærleiksríkan föður, og við eigum að lofa Guð með Ijúfum söng orða og verka. En barétta skyldi og þjónusta vera. Kona ein spurði Grundt- vii. er hann var orðinn gamall, hvort hann óttaðist dauðann. ..Nei, ég óttast hann ekki,“ svaraði Grundtvig, ,,en —“ bætti hann við með djúpri alvöru og leit á konuna, „dauðinn er and- stœðingur minn.“ Grundtvig var ljóst, að lofgjörðin lífinu til dýrðar og bar- attan við óvin þess varð að vera í Guðs hendi: Sem mergðin fugla’ um fjöll og hlíð með fögrum lofsöng alla tíð hinn bjarta vordag boðar, hver tunga, sem að tala kann, eins tignar dauðans sigrarann :■: af páskaröðli’ er roðar. :|:

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.