Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 38

Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 38
84 KIRKJURITIÐ presturinn vikulega og talar við gamla fólkið. Það safnast sam- an í borðstofunni og hlýðir á prestinn. í þetta sinn var auð- vitað sérstök frásögn frá íslandi, og var slíkt vel þegið. Ann- ars eru menn næsta vanir heimsóknum útlendinga í Lárbro, því að presturinn á vini úti um allan heim, síðan hann starf- aði á vegum Alkirkjuráðsins. Nýverið hafði Indverji verið í heimsókn ,einnig svartur Meþódistaprestur frá Jamaica o. fl. Þegar við höfðum rabbað góða stund við gamla fólkið yfir kaffibollum, litum við inn til þeirra, sem voru rúmliggjandi. Ég minnist sérstaklega vitjunar hjá níræðum öldungi, sem var með allan hugann við himininn og talaði oft um það, hve mikil hamingja honum hefði hlotnazt meðal guðsbarna á jörðinni. Nú var hann reiðubúinn að ganga inn til dýrðar guðsbarna á himnum. Þetta var í alla staði fyrirmyndar elliheimili, allt svo vel málað og allt í röð og reglu úti og inni. Það var sama, hvar komið var í landi Svíanna. Allt virtist vera fullgert, ekkert, sem á vantaði. Sérstaklega tók ég eftir því, hvað umhverfi skóla og ýmissa annarra stofnana var snyrtilegt, og hvar sem stigið var út úr flugvél, þá blasti sama reglusemin og snyrtimennsk- an við. Utan flugbrautanna voru grænar sléttur, blómabeð og sitthvað til skrauts. Það hafði strax góð áhrif á komumenn. Fagurt landslag, tilkomumikil mannvirki og skrautlegir garðar getur allt verið eftirminnilegt í huga ferðalangsins, en eftir- minnilegast af öllu hlýtur þó að vera snertingin við fólkið, sem landið byggir. Ég átti kost á að sjá svo mörg andlit í svipsýn, er ég tók þátt í fundi, sem kvenfélag kirkjunnar efndi til í Lárbro. Þar voru mörg börn, falleg og kurteis, sem hneigðu sig djúpt fyrir ókunna manninum. Flest börnin, sem sóttu sunnu- dagaskólann þennan dag, komu með lítinn pakka með sér, vaf- inn innan í jólapappír. Þetta voru gjafir handa flóttamanna- börnunum og voru þær óme.rktar að öðru leyti en því, að aldur þeirra barna, sem pakkana áttu að fá, var tilgreindur á hverj- um pakka fyrir sig. Börnin báru nú fram allar þessar jólagjaf- ir og lögðu þær við altarið í Ólafskapellunni, en þar var sunnu- dagaskólinn h»ldinn. Þetta var framlag þeirra til flóttamanna- hjálparinnar. Börnin hurfu flest úr kirkjunni, þegar hámessan skyldi hefjast kl. 11 f. h. Leikmaður hafði stjórnað sunnudaga- skólanum í Lárbro, en presturinn verið með sunnudagaskólann á útkirkjunni á sama tíma. Þegar hann kom, gengum við sam-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.