Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 48
94 KIRKJURITIÐ Skyggna konan. Frásagnir um dulsýnir og lœkningar Mar- grétar frá Ötinafelli. Safnað hefur og skráð Eiríkur Sigurðsson skólastjóri. — Bókaútgáfan Fróði. Þetta var metsölubók fyrir jólin. Það sannar það, sem ég vék að hér á undan, að miklu fleiri láta sér títt um dulræn fyrir- brigði og girnast að vita skil á þeim en ætla mætti af hvers- dagslegu tali manna um andleg mál. Að vonum þyrstir marg- an eftir að komast að því með vissu, hvort andlegar lækningar eigi sér stað og hvert sé helzt að leita í þeim efnum. Mein manna eru svo mörg og almenn. Þess vegna varð Margrét í Öxnaíelli skyndilega þjóðfræg á unga aldri, að margir vottuðu, að þeir hefðu fengið ýmislega meinabót fyrir tilstuðlan eða meðalgöngu hennar. Alkunnugt er, að kristin kirkja hefur alltaf haldið fram staðreynd andlegra lækninga allt frá dögum frelsarans og post- ulanna. Og sérstaklega kaþólska kirkjan, sem fullyrðir, að ótal dýrðarmenn hafi læknað sjúka fyrr og síðar, og að á sumum stöðum eins og í Lourdes gerist kraftaverk árlega. Verður því að fagna útgáfu þessarar bókar og vænta þess, að hún verði hvatning til einlægra og ítarlegra rannsókna á andlegum lækn- ingum hérlendis. Vísast annars frekar um þessi efni til greinar séra Benjamíns Kristjánssonar um huglækningar, sem birt mun í næsta hefti. Bókin gæti verið betur gerð. Hún er nokkuð losaralega sam- ansett. Efnið hefði átt að flokkast betur, þjappa sumu meira saman, afla helzt enn víðtækari gagna o. fl. En hvað um það — mest er um það vert, að margir telja sig standa í óbætan- legri þakkarskuld við þá konu, sem hér segir frá og bókin ætti fyrst og fremst að auka trúna á æðri mátt, sem getur hjálpað, þegar þekking og snilli læknanna stendur ráðþrota. Hitt er f jar- stæða, sem ekki þarf að eyða orðum að, að huglækningar eigi á nokkurn hátt að rýra álit almennra lækna né draga úr því að menn leiti þeirra. Það bryti jafnt í bág við skynsemina sem trúna. G.Á.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.