Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 8

Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 8
Kl RKJURITIÐ 342 eiginlegum skilningi. Hugtakið „liinn kosmiski“ Kristur bar Jtar mjög á góma, og virtist áberandi sú skoðun, sem aðgreinir verkanir andans og telur sig jafnvel geta greint þær fyrir ým- iss konar áhrif heiðinna trúarbragða, en skilur þær frá endur- lausnarstarfi Krists og lians sögulega persónuleika. En allt slíkt virðist t. d. norska kirkjan eða fulltrúar hennar liafa átt hágt með það að viðurkenna, samkvæmt sínum lútlierska skiln- ingi, að l>ví er bezt verður ráðið af orðum Stöylens biskups. ÍNýj u Delhi voru teknar inn í Alkirkjuráðið 23 nýjar kirkj- ur; af þeim voru 11 frá Afríku og 4 orthodoksar kirkjur. Sögu- legust þótti innganga rússnesk-ortliodosku kirkjunnar á þing- inu. En það var rætt um inngöngu hennar strax í Amsterdam 1948, en á tíma Stalinismans var mjög erfitt að fá leyfi til slíkra sambanda. Og það er heil röð ýmiss konar atliafna og atvika, eiginlega löng saga, sem gerist áður en rússneska kirkj- an fær að stíga þetta þýðingarmikla spor til samstarfs og ein- ingar við kirkjur hins vestræna lieims og annarra landa með ólík sjónarmið og ólíkt skipulag því, sem viðurkennt er í Sovét. Má vafalaust telja innlimun þessarar kirkjudeildar í Alkirkju- ráðið miklu þýðingarmeiri viðburð en í fljótu bragði kann að virðast, og einn af merkustu atburðum ársins 1961 í alþjóða- málum. Þarna hefur kirkjunni raunverulega tekizt að rjúfa járntjaldið, liverjar svo sem afleiðingar þess verða. Um þetta fórust aðalritara Alkirkjuráðsins orð á þessa leið við opnun þingsins: „Oss býðst nú voldugt tækifæri, til að tryggja andleg samskipti milli austurkirkjunnar og þeirra kirkna, sem eiga uppruna sinn í vestri. Ef við grípum þetta tækifæri, þá verður það ekki til að auðvelda verkefni Alkirkjuráðsins, en samt sem áður mun það auðga það að miklu. Vér þurfum aukins innri kraftar, ekki svo mjög til að jafna hinn forna ágreining milli austur- og vesturkirkjunnar, lieldur einnig nú- tíma andstæður í pólitískum átökum austurs og vesturs. En Iiversu mikinn rétt höfum vér til að blanda oss í þann vanda, verði hann á oss lagður. Vér getum aðeins beðið Guð, að gjör ast verð svo þungrar ábyrgðar“. Til að sýna, live verkefni þingsins voru yfirgripsmikil, má nefna, að þar voru rædd málefni og lagðar fram skýrslur iuu vandamál Angola, aðild kínverska þjóðveldisins að Samein-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.