Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 26
KIRKJURITIÐ 360 dóníu. Hún hét upphaflega Krenides og var þekkt vegna gull- og silfurnáma í Pangeon-fjöllum, sem eru í námunda við liana. Filippus Makedóníu-konungur vann borgina, til þess að eignast námurnar og kallaði hana Krinides Pliilippí, eða Sesareu Filippí. Árið 42 biðu morðingjar Sesars, Brútus og Kassíus þarna mikinn ósigur í orrustu við Antóníus og Okta- víanus. Síðar gerði Ágústus borgina að rómversku skattlandi. Var þá nafn liennar Kólonía Ágústa Filippensis. Þegar þeir Páll og samstarfsmenn lians, hafa livílzt nægi- lega eftir ferðina, fara þeir að kynna sér borgina nánar. Þeim verður fljótt ljóst, að fátt er um Gyðinga í borginni, og veldur því einkum það, að hún er setuliðsborg. Þar er mest af Róm- verjum og Grikkjum. Vegna þessa fámennis Gyðinganna, eru þeir ekki færir um að eiga sér sérstök samkunduliús. Þeir verða að láta sér nægja bænahaldsstaði, sem eru þannig, að guðsþjónustan fer fram undir berum himni, eða þá að það eru litlir salir. Þar sem Gyðingar vorn liér meðal útlendinga, völdu þeir bænahaldsstöðum sínum aðsetur nálægt sjávar- strönd, eða þar sem var rennandi vatn, til dæmis á fljótsbakka. Gerðu þeir það til þess að geta fylgt hreinsunarsiðunum sam- kvæmt lögmálinu. Enn fremur var meiri lduta borgarbúa ekkert um það að Gyðingar liefðu samkomustaði sína innan múra borgarinnar. Loks kom hvíldardagur. Þá var upp runnin sú stund, sem Páll taldi lieppilegasta til að taka til starfa. Hann gengur, ásamt samstarfsmönnum sínum, út fyrir borgina og á bakka árinnar Gangítes. Þeir koma til bænahaldsstaðar, þar sem margar konur eru saman komnar, aðallega Gyðingar, en einn- ig fáeinar rómverskar og grískar konur. Páll og félagar lians gefa sig á tal við þær. Og aðkomumennirnir setjast. Stutta stund er rætt saman, aðallega til fyrstu kynna. En svo tekur Páll einn orðið og fer að kenna. Af brennandi eldmóði flytur hann boðskapinn um það, að hinn langþráði Messías liafi nii þegar lifað, starfað og látið líf sitt á krossi til lausnargjalds fyrir marga. Hann segir frá kenningu Krists og kraftaverkum lians. Áfram heldur hann með vaxandi ákafa og áheyrendurnir hrífast með. Frásögnin verður æ stórfenglegri. Nú segir liann

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.