Kirkjuritið - 01.10.1962, Page 34
KIRKJURITIÐ
368
mótsins og frú Laufey flutti erindi um starf djáknasystra og
sýndi litmyndir. Alls voru skráðir mótsgestir 39, en þess ber
þó að geta, að ekki gátu allir verið báða dagana, en 32 voru
allan tímann.
Mólið bófst með guðsþjónustu og altarisgöngu í Víðimýrar-
kirkju, þjónaði séra Gunnar Gíslason, Glaumbæ fyrir altari,
en séra Bragi Friðriksson prédikaði. Var þessi stund í liinni
gömlu torfkirkju sérstaklega bátíðleg og skapaðist þar í upp-
bafi sá andi, sem átti eftir að vera mest áberandi það, sem eftir
var þessa tíma að Löngumýri. En það var mál manna, að mót
þetta befði lieppnazt afbragðsvel og verið að því mikill feng-
ur. Hittust þarna margir í fyrsta skiptið og skiptust á skoðun-
um og sögðu frá reynslu sinni; enda var einn aðaltilgangur-
inn með mótinu að korna á persónulegum kynnum þeirra
ntanna, er sérstaka ábyrgð liafa á æskulýðsmálum kirkjunnar.
Að guðsþjónustu lokinni var haldið að Löngumýri á ný og
mótið formlega sett af formanni Æskulýðsnefndar séra Braga
Friðrikssyni. Bauð liann fulltrúa velkomna og lýsti ánægju
sinni yfir afbragðsgóðri þátttöku. Æskulýðsfulltrúi kirkjunn-
ar, séra Ólafur Skúlason skýrði frá tilbögun mótsins og verk-
efnum. Var öllum þinglieimi skipt niður í umræðuliópa, fjóra