Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 42
INNLENDAR
F R É T T I R
Frú AuSur Gísladóttir ekkja Árna prófasts Jónssonar, andaðist 27. júlí
s. 1. Hún var fædd 1. 3. 1869.
Séra Ingimar Ingimarsson var kosinn lögmætri kosningu á Húsavík.
Hann liefur nú heiðzt undan skipun og situr kyrr á Sauðanesi.
Sunnudaginn 2. sept. s. I. vígði biskup Islands cand. theol Pál Pálsson
aðstoðarprest séra Jónasar Gíslasonar í Vík í Mýrdal.
ASalfundur Kirkjukórasambands Islands. (Fundargerð, lítillcga stytt).
Fimmtudaginn 21. júní 1962 var aðalfundur Kirkjukórasambands Islands
settur og haldinn í fyrstu kennslustofu Háskólans í Reykjavík. Formað-
ur sambandsins, Jón ísleifsson organisti, setti fundinn og bauð fundar-
menn velkomna. Nefndi hann sem fundarstjóra séra Þorgrím Sigurðsson
Staðastað, en hann nefndi til að rita fundargjörð séra Magnús Guðmunds-
son Ólafsvík og Pál H. Jónsson Reykjavík.
Formaður flutti skýrslu stjórnarinnar. Starfsemi Kirkjukórasamhands
íslands var með svipuðu móti og áður. Aðalkennari sambandsins var
Kjartan Jóhannesson og var starfsími hans hjá því sem næst 36 vikur
og aðrir kennarar kenndu í 12 vikur. Sex kirkjukórasandiönd nutu söng-
kennslu og innan þeirra 36 kirkjukórar. Þrír kirkjukórar voru stofnaðir
á árinu, tveir í N.-Þingeyjarprófastsd., við Svalharðskirkju í Þistilfirði
með 17. félöguin og við Víðihólskirkju með 9 félögum. Þriðji kórinn
var stofnaður í Mýrdal, Söngfélag Sólheimakapellu, með 14 meðlimuni.
í Kirkjukórasambandi íslands eru nú 206 kirkjukórar með nálægt 3500
meðlimum.
Sex kirkjukóra-söngmót á vegum fimm kirkjukórasambanda voru hald-
in á starfsárinu og að þeim stóðu 23 kirkjukórar með um það bil 650
söngmeðlimum.
Fjárhagsáœllun ncesta árs.
a. Tekjur:
a. Tekjur:
í sjóði ........................ _ 22759,73
Ríkisstyrkur ................. kr. 60000,00
Árgjöld ........................ _ 1500,00
Samtals kr. 84259,73
b. Gjöld:
Söngkennsla ................... kr. 50000,00
Ferðakostnaður og dagpcn. .. _ 7500,00
Sími og burðargjöhl ........ — 1500,00
Ýmislegt ........................ — 3000,00
Eftirstöðvar ................... — 22259,73
Samtals kr. 84259,73
Fjórhagsáætlun þannig samþykkt samhljóða.