Kirkjuritið - 01.10.1962, Síða 45

Kirkjuritið - 01.10.1962, Síða 45
KIRKJURITIÐ 379 Altarisklæði hafa gefið systkinin Laufey, Svava, Þuriður, Guðrún, Bald- ur og Jón Bjartmar í Reykjahlíð. Auk þess gefa þau í rainningu um for- eldra og systur, tuttugu og fimm þúsund krónur. Altarisdúkurinn er gefinn af Valgerði Sigfúsdóttur, Húsavík. Þar standa og tveir þríarma Ijósastjakar. Þetta er minningargjöf gefin af hörnum Jóns Einarssonar og Hólmfríðar Jóhannesdóttur, Reykjahlíð. Biblía a altarið er minningagjöf um hjónin Ivristjönu Hallgrímsdóttur og Illuga Einars- son gefin af sonum þeirra Óskari og Valgeiri í Reykjahlíð og konum þeirra Sigrúnu Hallfreðsdóttur og Guðrúnu Jakobsdóttur. Prédikunarstóllinn, sem er smíðaður af Jóhanni Hallgrímssyni, Reykja- vík, er gjöf frá hörnum Jóns Ármanns Jakobssonar frá Grímsstöðum. Burt- flutt sóknarfólk, húsett í Reykjavík gaf kirkjunni gólfdregil. 011 ljósatæki eru gjafir, stærstan hlut þar á kvenfélagið Hringur, svo og kvenfélag Mývatnssveitar, og Menningarsjóður Kaupfélags Þingeyinga. I efsta hluta kirkjuglugganna er litað gler. Það er gefið af Illuga Jóns- syni á Bjargi. Kirkjuklukkurnar eru gefnar af Kvenfélaginu Ilring, er það varð 60 óra á sumardaginn fyrsta s. 1. Bræðurnir á Geiteyjarströnd, Sigurður, Jón og Jóliannes, liafa gefið kirkjunni kr. 60 þús. í minningu um foreldra sína, Jóhannes Sigurðsson og Guðrúnu Jóhannesdóttur, en fjölmargra annarra peningagjafa er ekki rúm til að geta hér. Ótaldar eru iniklar vinnugjafir. Fjölmörg áheit hafa og borizt kirkjunni víðs vegar að. Pétur Jónsson í Reynihlíð flutti söguágrip kirkjunnar og þeirra presta og prófasta, sem við hana hafa verið. Aðrir, sem tóku til máls, voru séra Sigurður Guðmundsson á Grenjaðarstað, prófasturinn séra Friðrik A. Frið- riksson, Jón B. Sigurðsson, Petrína Jakobsson og Sigurður Stefánsson og sóknarpresturinn, séra Örn Friðriksson, sem flutti þakkir fyrir hönd kirkj- unnar. Kirkjukórinn söng á milli þess, sem ræður voru fluttar og Sólveig Illugadóttir á Bjargi söng einsöng. Grafarneskirkja. — Laugardaginn 8. september s. 1. hlöktu fánar á ný- reistri kirkju í Grafarnesi í Grundarfirði. Byggingarframkvæmdir hófust sumarið 1960 og var þá gerður kjallari undir nokkrum hluta kirkjunnar, en þar á að vera safnaðarheimili. Er þar stór salur, eldhús, geymsla og snyrtiherbergi. Ellefu manna vinnuflokkur frá Alkirkjuráðinu vann um þriggja vikna skeið að hyggingu safnaðarheimilisins, og varð hann að miklu liði. Árið 1961 lágu framkvæmdir að mestu niðri, en á s. 1. vori var aftur hafizt lianda við byggingu sjálfs kirkjuskipsins. Kont nú 15 manna flokkur frá Alkirkjuráðinu enn til liðs við okkur heimamenn og vann við kirkjuhygginguna frá 6. til 27. júlí. Vann flokkurinn við móta- uppslátt með smiðunum, steypti upp veggi kirkjunnar, gróf skurð fyrir vatn og frárennsli o. fl. Þá komu nokkrir þátttakenda upp girðingu um- hverfis nýreistan harnaskóla og greiddu þannig fyrir afnot hússins, en vinnuflokkurinn hafði þar aðsetur og fundarstað. Hjónin Jónína Kristjáns- dóttir og Jón Elbergsson sjómaður, lánuðu endurgjaldslaust eldhús °g matstofu í húsi sínu til afnota fyrir vinnuflokkinn. Soffía Jóhann-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.