Kirkjuritið - 01.01.1963, Page 19
K 1 H K .1 U H IT11)
13
liafi verið ofdrykkja að skapi, því að ekki dettur niér það í
hug, lieldur til að leitast við að skýra, livernig hann muni liafa
litið á þetta mál í aðalatriðum. Og ég held, að vér munum
aldrei komast að neinni skynsamlegri niðurstöðu um áfengis-
vandamálið fyrr en vér reynum að skilja sjónarmið lians.
Jesús var ekki efnishyggjumaður fremur en nokkur annar
mikill spámaður. Það var því ekki fyrst og fremst líkaminn,
lieldur liin ódauðlega sál mannsins, sem hann taldi að lækna
þyrfti. Ef sálin væri lieilbrigð og liefði náð réttum þroska og
skilningi, væri ekki mikil hætta á, að maðurinn færi sér að
voða í Jiessum efnum fremur en öðrum. Væri sálin hins vegar
sjúk, hugmyndir manna um Guð og veröldina og allar mann-
legar dyggðir rangar og öfugsnúnar, J>á gagnar ekki mikið að
taka vínið af þeim: Það mundi þá bara fara eins fyrir þeim
eins og fylliraftinum í sögu Pushkins: Hjálpir J)ú honum á
hak á hrossið öðrum megin, dettur hann af baki hinum megin.
Maður, sem er fullur ranglætis, kemst ekki hjá Jijáningunni.
Hugsanlegt er, að áfengisbölið sé jafnvel tiltölulega meinlaus
útrás á vanþroska og illum livötum mannanna. Þeir, sem eyði-
leggja sig á drykkjuskap, virðast þannig fremja glæp gagn-
vart sjálfum sér og sínum nánustu. En kynnu Jieir ekki í öðru
tilfelli að hafa framið liálfu verri glæp gagnvart öðrum? Vínið
kann í þessum tilfellum að vera eins konar öryggisventill, J>ar
sem glötunaröflin, sem í oss búa meðan vér öðlumst enga æðri
skyggni, mæða mest á oss sjálfum í stað Jiess að snúast út á við.
Það var annars ekki ætlun mín að ræða þetta vandamál til
nokkurrar hlítar í þessu sambandi. En slá má því föstu, að
allar gjafir Guðs séu góðar, ef vér aðeins kunnum vel með þær
að fara. Og gagnvart víninu liggur hættan alltaf inni í inann-
inum sjálfum, sál lians. Það er oft einmanakennd mannsins
og lítilmagnatilfinning, sein gerir hann veikan fyrir drykk.
En J)á komum vér að því, sein fyrir j)jóðtrúnni vakir. Vínið
hefur frá ómunatíð verið skoðað sem tákn gleðinnar. En svo
mikil getur gleðin orðið, að menn Jnirfi ekki að drekka sig
fulla. Ég lield, að á sælustu stundum ævinnar liafi enginn löng-
un til þess. Það er gripið lil vínsins, Jiegar hina sönnu gleði
Jtrýtur. En eigir J)ú gleði liugans og hjartans, gleði vitsins og
tilfinninganna, liugljómun andans og kærleikans, J)á ert J)ú
glaður vegna samfélagsins við drottin, þá verða öll vötn að