Kirkjuritið - 01.01.1963, Side 38
Páll Pálsson:
Vatnsfjarðarkirkja
Erindi flutt af Páli Pálssyni, hreppstjóra og
safnaSarfulltrúa 29. 7. 1962
Núverandi kirkja var byggð árið 1911 og var byrjaði á smíð-
um um vorið það ár. Teikningu af henni gerði Rögnvaldur
Ólafsson húsameistari, en byggingarmeistari var Kristján
Hólm, er áður liafði byggt íbúðarliúsið í Vatnsfirði, ásamt
verkamönnum er að þessu unnu. Múrverk annaðist Sigurður
Þorsteinsson frá Isafirði.
Byggingu kirkjunnar var lokið síðla liausts, og fór vígsla
kirkjunnar fram á jólum 1911. Byggingarkostnaður mun hafa
verið um 8—9 þús. krónur.
Árið 1932 fór fram veruleg endurbót á kirkjunni, var þá
öll kirkjan þiljuð innan og máluð. Það verk annaðist Árni
Ólafsson og Daníel Kristjánsson smiðir frá Isafirði. Kostnað-
ur við þá endurbót varð um 1500 krónur. Aftur var árið 1951
liafin endurbót með málningu að innan o. fl. og kostaði sú að-
gerð rúml. 1000 kr.
Árið 1950 var kirkjan máluS utan, þak og veggir og gluggar.
Vann það verk Ólafur J. Ólafs, nú læknir í Rvík, og kostaði
það viðliald um 1150 kr.
Á síðasta ári var kirkjan máluð utan og innan.
Kirkja liefur staðið í Vatnsfirði um langan aldur. Björn
Einarsson Jórsalafari, sem var um langt skeið böfðingi í Vatns-
firði, lagði áreiðanlega grundvöll að fyrstu kirkju og kirkju-
lialdi á Vatnsfjarðarstað, og byggði þar myndarlega kirkju og
lagði lienni til miklar eignir, sem gerðu veg kirkjunnar meiri,
og lagði grundvöll að því að gera Vatnsfjarðarstað að einum
mest eftirsótta liöfuðbóli landsins um langt skeið, enda var
Björn mikill böfðingi og kristinn maður og einn af beztu