Kirkjuritið - 01.02.1965, Síða 8
KIRKJURITIÐ
102
eins konar sjúkdómur, livað við höngum í því að allt verði að
vera eins og við viljum, og að við hljótum að barma okkur, ef
eitthvað ber út af því.
í tíð afa okkar og ömmu var iðulega snurða á lijónabandinu.
En ]>á datt mönnum ekki í lmg að rjúka í skilnað, þótt eitt-
hvað slettist upp á milli þeirra. Þeir litu á hjónabandið seni
samning, og það var á móti Guðs og manna lögum að brjóta
liann. Þeim fór líkt og landkönnuðum, sem alltaf eru að komn
að nýjum og nýjum ám og klífa hvert fjallið af öðru. Lang
flestir gáfust ekki upp fyrr en þeir komu að markinu.
Óneitanlega kemur fyrir að hjónabönd eru lögð í þvílíka
rúst að ógerlegt er að endurreisa þau. Eg lield ekki að þið séuð
komin svo langt. Hitt er annað, að þið munuð lenda í því, cf
]>ið grípið ekki til bjargráða og það tafarlaust.
Þú kveðst vilja tala við mig. Það er guð vel komið að þið
liittið mig eftir viku — ef þið Nancy fallist á að gera ákveðna
tilraun þangað til. Ef þið gangið að þeim skilyrðum, getui'
orðið eillhvert gagn að viðræðum okkar. Að öðrum kosti sé
ég litla ástæðu til að eyða hvort lieldur mínum eða ykkar
tíma til þessara hluta.
Ég fer fram á að þið eyöið daglega liálftíma næstu viku til
þessara tilrauna. Ég ábyrgist ekki að ykkur finnist þessi hálf-
tími skemmtilegur eða auðveldur. En ]>ið skuldið liann áreið-
anlega börnum ykkar, ef ekki líka ykkur sjálfum. Við skuluin
Iiorfast í augu við, að skilnaðarákvörðunin, sem þið eruð í
þann veginn að taka, hefur sín áhrif á líf ykkar allra finun.
Þessi tilraun, sem ég ætlast til að þið gerið, hefur áður verið
reynd með árangri. Það, sem til liennar þarf, er einfaldlega:
vekjaraklukka - helzt með háværum gangi — tveir stólar og
Iiljótt herhergi þar sem þið verðið ekki fyrir ónæði. Ein krafa
enn: Ég ællast til að þið látið bæði vera að hragða áfengi
þessa viku. Það getur vel verið að livorugt ykkar drekki nokk-
uð að ráði; en þegar samkomulagið er bágt á milli einliverra,
veldur áfengið því, jafnvel þótt í smáum stíl sé, að fyrr sýður
upp úr en ella. Leggið það þess vegna á hilluna. Þið hafið gott
af þeim aga.
Farið svo daglega inn í þetta kyrrláta lierbergi, lokið dyr-
unum, stillið klukkuna þannig, að hún hringi eftir 30 mínútur