Kirkjuritið - 01.06.1977, Blaðsíða 10

Kirkjuritið - 01.06.1977, Blaðsíða 10
Þó að slík hugsun sé ekki á réttri leið, þá er hún enginn hégómi. Hún er fyllsta alvara. Hver er ekki að leita að einhverju, sem bendi skýrum stöf- um til Guðs? Og hve margir eru þeir, sem leita afsökunar á því, að þeir stjaka frá sér hinni áleitnu spurningu um Guð? Hlýtur ekki einhvers staðar að vera handsamanlegur þráður milli mín og Guðs? Hvar er sú tenging, að Ijósið að ofan geti kviknað á altari hjartans? Hvar er hið hreina í flekk- uðum heimi? Hvar bjarmar fyrir hinu góða, fagra og fullkomna? Hvar er þann mann að finna, sem gefi mér hugboð, ótvírætt hugboð um Guð? Ef mönnum finnst þeir grípa í tómt, þegar þeir leita þangað, sem líklegt mátti telja, að svar væri að fá, eða þeim finnst þeir þreifa á allt öðru en hugur þeirra vænti, hvað gerist þá? Gjarnan það, að menn telja sig hafa fundið rök fyrir innri afstöðu, sem stendur dýpra í leynum mannlegs sálarlífs en menn varir: Það eru fund- in rök fyrir því, að Guð sé ekki til, að kirkjan sé marklaus, að prestar og trúmenn og allt þeirra athæfi sé í lausu lofti, svífandi á þokuhnoðrum ímynd- unar og blekkinga. Hitt er annað, að slík niðurstaða er að jafnaði næsta tvíráð inni fyrir. Það sést á því, hve rökin og niðurstaðan er einatt kærkomið umræðuefni og hitamál. Ekki þarf að fara orðum um það, til hvers Nýja testamentið ætlast af þeim, sem bera kristið nafn, hvort sem prestar eru eða ekki. Um köllun sinna manna hefur Drottinn sjálfur, Jesús Kristur, sagt stærri og sterkari orð en nokkur annar, sem kvatt hefur 88 menn undir merki sitt. Hann sagði háleit orð jákvæð, sem vér þekkjum allir og kunnum. Og einnig nístandi alvöruorð neikvæð: Vei þeim, sem hneyksla, vei þeim, sem verða öðrum að falli, vei þeim, sem véla og blinda- Betra væri þeim að hafa aldrei fæðst- Vér þekkjum einnig þessi orð oQ kunnum þau. Minnisstætt er mér það, sem ég las einu sinni í minningabók eftir danska konu, sem dvaldist lengi í Kenya með- an það land var nýlenda. Hún réði sé< svartan þjón, sem reyndist vel á alia grein. En eftir þrjá mánuði sagði hana upp starfi sínu og vistaði sig hjá Araba einum. Konan spurði, hvað kæmi til. hvort honum hefði fallið vistin illa; byðist hærra kaup eða önnur fríðind' meiri en hann nyti hjá sér. Nei, sagð' svertinginn. En kristnir menn boða Guð og Arabar boða Guð. Nú langar mig að vita, hvar hann er í raun oQ veru. Þar ætla ég að vera. Þess vegaa hef ég verið 3 mánuði hjá þér og a11 ætla ég að vera aðra þrjá hjá manni’ sem fylgir Múhammeð. Konan segist ekki hafa gleymt þess' um orðum. Sífellt sótti þessi hugsna að henni: Hefði ég aðeins vitað, a® það var maður hið næsta mér, se^ daglega var að gefa mér gaum af Þvl að hann var að leita að Guði hjá mén hversu allt öðruvísi hefði ég þá ekk1 komið fram margoft en ég gerði. Hvaða prestur má ekki hugsa 3 þennan veg og athuga boðun sína^ dagfar, orð og gjörðir f þessu Ijós'. Ég var einu sinni sem oftar a vísitera. í einni fátækri kirkju raks ég á tvær styttur fornar. Þær erLl skornar í tré, helgra manna bíls®11' J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.