Kirkjuritið - 01.06.1977, Side 48

Kirkjuritið - 01.06.1977, Side 48
unni: „Ef ég tala missir þú eiginmann.“ Ég svaraði samstundis — ekki vegna hugrekkis heldur af því mér var það inngeíið á stundinni: „Ég þarfnast ekki eiginmanns, sem er bleyða.“ Hann bað um orðið. Kommúnistarn- ir voru í sjöunda himni. Fulltrúi heims- ráðs kirkna og útlenda trúboðsins ætl- aði að bfta á agnið og taka þátt í áróðrinum íyrir þá. Richard stóð upp og steig í ræðustólinn, um leið varð allt svo hljótt að heyra hefði mátt nál detta. Það var og eins og Andi Krists væri í nánd. Richard sagði að þegar börn Guðs væru samankomin, söfnuðust englar Guðs einnig saman til að hlusta á vís- dóm Guðs. Það væri því skylda allra viðstaddra, ekki að lofa hástöfum ver- aldlegt vald, sem kæmi og færi, heidur að gefa Guði dýrðina, skapara himins og jarðar, og Kristi Frelsaranum, sem dó á krossi fyrir glatað mannkyn, fyrir okkur öll. Meðan hann var að tala breyttist andrúmsloftið í salnum. Hjarta mitt barðist um í gleði yfir því að hugsa til þess að þessi boðskapur heyrðist um allt landið. Snögglega þaut menntamálaráð- herrann Burduca á fætur. „Réttur yðar til að tala er tekinn til baka,“ hrópaði hann. Hann baulaði fyrirskipanir ofan af pallinum til skósveina sinna. Ric- hard lét sem ekkert væri og hélt áfram. Áheyrendur fóru að klappa og gera góðan róm að. Hann var að færa það í orð, sem þeir vildu allir í raun og veru sagt hafa. Burduca gelti: „Takið hljóðnemann úr sambandi.“ Áheyrendur hrópuðu hann niður. „Hirðirinn! Hirðirinn!" sungu þeir 1 kór. „Presturinn. Presturinn.“ Richard hafði breytzt úr „presti" í prestinn. Óróinn stóð yfir í margar mínútar’ Hrópin og klappið hélt áfram löngu eftir að búið var að taka hljóðnemann úr sambandi. Þannig endaði þess' samkunda. Við komum okkur út gegr1' um hávaðann og uppistandið. Heima hafði móðir Richards heyrt allt saman í útvarpinu. Þegar allt 1 einu hætti að heyrast frá samkornuar11 áleit hún að hún myndi aldrei fá ^ sjá son sinn framar. „Ég hélt þeir hefðu fangelsað yk^' ur bæði. Hvað haldið þið að nú mu11' ske?“ sagði hún náföl. Ekkert gerðist opinberlega, en fljutt fór að bera á því að kommúnískir óró^' seggir voru sendir inn á sarnkomL,r okkar til að trufla þær. Við mo^ nýlega búin að opna nýtt og stserríl safnaðarheimili. Viku eftir viku þrengð11 frekjulegir unglingar sér inn bakafl og blístruðu þar, góluðu og trufiu®1' helgihald okkar.“---------- Brátt íór svo að síra Richard Wurr11 brand hvarf. Honum var varpað í dy^ isu. Ekki fékk kona hans vitneskju uH1 það, hvar hann var geymdur, og yt'r völd neituðu því, að þau vissu hW hann væri niður kominn, þótt Þal' hefðu látið handtaka hann. Brátt ko111 að því að Sabína var handtekin gisti ýmis fangelsi: Þar voru auðvi*a fangar fyrir ýmsar sakir, en mar0 vegna trúar sinnar. Hún segir frá hir daglega lífi í fangelsunum, fyrirlest' nh1’ unum, heilaþvottinum, þrælkuni auðmýkingunni, óttanum og fanga: „Á hverjum sunnudegi vorum líflát' við ' 126

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.