Kirkjuritið - 01.06.1977, Síða 56
Dr. Björn Magnússon. Dr. Valdemar J. Eylands. Dr. Sigurður Pálsson.
Haraldur Ólafsson, kristniboði, bróðir
Jóhannesar og sonur Ólafs Ólafsson-
ar, kristniboða. Haraldur starfar á veg-
um Norsk Luthersk Misjonssamband
að mjög merkilegu verkefni, endur-
skoðun nýrrar þýðingar Nýja testa-
mentisins á Boranamállýzku af Oro-
mostofni. Jafnframt undirbýr hann út-
gáfu þessarar þýðingar.
Skúli Svavarsson mun væntanlega
halda til Kenýa með fjölskyldu sína
jafnskjótt og auðið verður. Starf ís-
lendinga þar verður sem áður í ná-
inni samvinnu við Norsk Luthersk
Misjonssamband.
Þrír heiðursdoktorar í guðfræði
Háskóli íslands sæmdi þrjá guðfræð-
inga og kennimenn doktorsnafnbót í
heiðursskyni á síðustu Háskólahátíð.
Þá síra Sigurð Pálsson, vígslubiskup,
síra Björn Magnússon, fyrrum prófes-
sor og dr. Valdemar Eylands. Þessir
menn allir eru kunnari en svo, að
rekja þurfi feril þeirra og störf fyrir
lesendum Kirkjurits. Það er gleðiefni,
134
að þeir skuli virtir þessa sóma. Pres1'
ar og ýmsir fleiri vinir munu fagna með
þeim og þykjast eiga hlut í heiðrl
þeirra. Njóti þeir vel og starfi eíl11
margt til góðs.
G. Ól. Öl-
Norðfjarðarkirkja 80 ára.
Þann 24. janúar s. I. voru liðin rétt
ár síðan Norðfjarðarkirkja í NeskaUP
stað var vígð. Þessara tímamóta
veglega minnst á Norðfirði sunnudað,
inn 23. janúar. Þá var hátíðarmesse
Norðfjarðarkirkju kl. 2. Biskup ísland5,
hr. Sigurbjörn Einarsson prédikaði ^
sóknarprestur sr. Svavar Stefánsson
sr. Páll Þórðarson sóknarprestur ^
Njarðvík þjónuðu fyrir altari. KirKÍ®
var þétt setin og fjölmargir stóðu-
messu lokinni bauð sóknarnefnd kii^^
gestum til kaffidrykkju í félagshein111
inu Egilsbúð. Þar var fjöldi manns ei^
ig saman kominn og margir töiu f
Bárust kirkjunni margar veglegar 9r
ir og kveðjur.
J