Muninn - 01.05.1986, Blaðsíða 27
semja meitlaðri lög enda eru
þau, þegar á allt er litið, mun
áhrifameiri en þau íburðar-
miklu."
Þrátt fyrir augljós gæði
þessa lags tók það Breta rúmt
ár að meðtaka það.
Næsti kafli hófst með útkomu
annarrar breiðskífu Prefab
Sprout, en hún kom út um ára-
mótin 1984-85. Þessi plata
heitir Steve McOueen og er
sannkallað meistaraverk. Hún
er mjög jafngóð og hin mesta
unun á að hlýða. Hún hefur
komið Prefab Sprout I hóp
eftirtektarverðustu og bestu
hljómsveita nýbylgjuheimsins.
Þess má geta að Prefab Sprout
var í þriðja sæti yfir bestu
plötur ársins 1985 á Rás 2 á
lista sem hlustendur völdu nú
um áramótin.
Síðan Steve McQueen kom út
hefur komið út 12" plata með
laginu "Johnny Johnny" (eða
Goodby Lucille no. one) af
Steve McQueen og þremur nýjum
lögum. "Johnny Johnny" stendur
fyrir sinu en hin þrjú finnst
mér heldur slök. Sveitin virð-
ist hafa fallið í þá gröf að
blekkja aðdáendur sína í krafti
vinsældanna. Þetta þykir mér
miður og vona að platan marki
ekki nýja stefnu í tónlistar-
sköpun Prefab Sprout.
Paddy McAloon hefur sagt að
hann eigi efni á tvær til þrjár
plötur i viðbót, þannig að við
megum eiga von á að heyra eitt-
hvað frá Prefab Srout I fram-
tiðinni. Hvað það verður veit
nú enginn, en vonandi verður
það i anda meistaraverksins
Steve Mc Queen.
(Grein þessi er að nokkru leyti
byggð á kynningu sem var i Ný-
ræktinni, góðum þætti sem er
hálfsmánaðarlega á Rás 2 kl.
22.00 á föstudagskvöldum.
Greinin getur þvi ekki talist
algjörlega min.)
Þórgnýr J. Dýrfjörð
?
Draumfuglar
gogga i þykka
skelina,
vilja innfyrir.
Lifið:
Veruleikadraumar.
Þórarinn Torfason
Muninn 11