Jörð - 01.09.1932, Síða 138
13G
HJARTABILUN
[JörS
Þegar nú hj artalokurnar hafa orðið fyrir áhrifum af
„liðagigt“, þá verður það ekki aftur tekið. Skemmdin
sjálf er óafturkallanleg, þó að megi, þegar giftan er með,
vinna það talsvert upp á annan hátt. Var aðeins vikið að
því fyr í grein þessari. Og er það nú væntanlega ljóst, að
eina ráðið til þess að koma í veg fyrir
meiri hlutann af hjartabilun, er það, að
koma í veg fyrir „liðagigt“ í börnum og
u n g 1 i n g u m.
Þ E G A R leitað skal ráða við þessu, þá er nauðsyn-
legt að gera sér þess glögga grein, að vitanlegt er, að
talsvert má þekkja þau börn úr, sem eru tiltölulega næm
gagnvart „liðagigt“. Þess háttar veila liggur oft í ætt-
um, og eru börnin venjulega fjörmikil, greind og ímynd-
unarrík, en óstöðug í lund og láta illa við veðuroreyting-
um. Óll þess háttar börn eiga kröfu til sérstakrar umönn-
unar foreldra og kennara, og er þá mikilu meiri von til
en ella, að þau verði ekki „liðagigtinni11 að bráð.
Aðstandendur hvers bams slíks, sem hér að framan
hefir verið lýst, verða að koma sér niður á ákveðna með-
ferð á því, með það fyrir augum að verja það eftir föng-
um ,,liðagigt“. Verður að leggja áherzlu á að herða þau
með öllum hugsanlegum ráðum, útilofti og sólskini, — en
hlífa ]æim þó við snöggum veðurbrígðum og gæta þess,
að þeim verði ekki kalt votum. Líka verður að leggja
stund á að verja þau ofreynslu, hvort heldur er til líkama
eða sálar; og nærgætni og umburðarlyndi má ekki telja
eftir sér að láta þeim í té; því oft eiga svona börn ervitt
með lund sína. í mataræðinu verður að leggja ákveðna
áherzlu á fjörefni og sölt; einkum eru það fjörefnið B og
kalk og joð, sem verður að hugsa þeim fyrir. Kirkilauki í
koki og þess háttar verður að fá sem fyrst þá aðgerð er
hæfir. Athugul læknisskoðun er sjálfsögð öðru hvoru.
M IN N I hluti þeirrar hjartabilunar, sem kemur
íyrir, á upptök sín á fullorðinsárum. Er þá venjulega um
að ræða langvinna sjálfseitrun, er stafar af nýrnasjúk-