Jörð - 01.08.1942, Side 9
\ LDREI hafa erlend áhrif flætt inn í land okkar í striðari straum-
um en nú. Þess vegna ber okkur að standa styrkan vörð um þjóð-
erni okkar, tungu og þjóðlega menningu. Þarf að leggja ríka áherzlu
á að glæða með þjóðinni ást á öllu því, sem islenzkt er og miðar
til góðs, fyrst og fremst tungu okkar, fjöreggi þjóðernisins. Veitir
sannarlega ekki af að ýta við þjóðarmetnaði okkar sumra hverra,
því að svo virðist, sem ýmsir hafi gleymt því, i samskiptum sín-
um við setuliðin, að þeir eru íslendingar, en ekki föðurlandslaus
skríll. En eg vil taka það fram, að við eigum að forðast allan þjóð-
ernishroka, þvi að hann getur litlu öðru valdið en tjóni.
Vafalaust getum við ýmislegt lært af þjóðum þeim, er hér hafa
setulið. En ef við tileinkum okkur eitthvað úr menningu þeirra
eða einhverra annarra þjóða í framtiðinni, þurfum við að gæta
liess vandlega, að íklæða það íslenzkum búningi, svo að það geti
verið í góðu samræmi við það, sem oss er upprunalegast. En við
megum alls ekki tileinka okkur annað en það, sem getur orðið landi
og lýð lil hlessunar.
, „SLAGUR“.
IJÚNÍ i fyrra sumar ruddust þýzkir hermenn inn á
skemmtisamkomu í Lille-Bergen. Hljóðfæraflokkurinn hætli
samstundis og allir Norðmenn fóru út. Hermennirnir létu nú all-
sigurdrjúglega á húströppunum og liðsforingi nokkur talaði hástöf-
um um yfirburði sinnar þjóðar. Þá varð einum Norðmannanna það
á að gleyma sér. Hann hljóp upp á tröppurnar og hrauð þær þeg-
ar og hófust nú almenn áflog. Einn hinna norsku pilta barði niður
l>rjá hermenn, en þá var rekinn byssustingur í siðuna á lionum.
Hann hneig niður, en reisti sig aftur upp sem snöggvast og barði
niður fjórða Þjóðverjann. Þjóðverjarnir héldu nú undan, en stund-
arfjórðungi seinna komu þeir aftur með byssur og liðsauka, en fundu
auðvitað engan. Þeir höfðu samt tekið svo eftir einstöku Norð-
manni, að þeir gátu haft upp á nokkuruin og dregið þá fyrir dóm-
stól. Hermaðurinn, er greip til byssustingsins, var hækkaður i
tigninni. Norðmaðurinn særði fékk þriggja ára hegningarhús. Fé-
lagar hans tveir fengu nokkurra mánaða fangelsi. Eitt af norsku
vitnunum sömuleiðis.
REIvTOR NOKKUR í NOREGI,
Fostervold að nafni, hefur verið rekinn úr embætti og sendu nem-
endur skólans umkvörtun í tilefni af þvi til kennslumálastjórnar-
deildarinnar, en fengu það svar, að þetta væri ekki skólamálefni.
(Norsk Tidend).
JÖRÐ 135