Jörð - 01.08.1942, Side 13

Jörð - 01.08.1942, Side 13
af sífjölgandi vörgum, — því enginn má viÖ mörgum. Þeir myrkrakyngi fyllast, um vali traðka og tryllast og spilla hofi’ og hörgum. Og himni Guðs menn breyta í vígavelli heita, svo vært er engu fleyi á víðum hafsins vegi — þeim yfir drekar fljúga og funa úr ginum spúa. Með fimbul-vængja gnauðan þeir æða’ um geiminn auðan og dauðann brögnum búa. Og hafið, lífi þrungið, er heljartólum slungið, svo hvert sem fari miðar, er háski’ á allar hliðar. Með dauðann fyrir stafni menn stýra í Drottins nafni sem stríðsmenn fyrri alda og öllu’ í horfi halda, hjá kaldri Hel þó hafni. í lofti vargöld þróast, þar ernir öndvert klóast í efsta styrjar-gapi. Sem himinstjarna hrapi þeim armur dauðans veifar og eldi geiminn reifar. í æði skelfinganna menn kvala hástig kanna, það sanna líkamsleifar. Jörd Og hann, sem líknar þjáðum, er „hafður með í ráðum“, 139

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.