Jörð - 01.08.1942, Page 32
Nú haldið þið, ef til vill, að liin vélræna þróun atvinnu-
Íífsins, merkilegar framfarir í byggingarlist, verkfræðileg
öfrék eða vöxtur og viðgangur iðngreina, sé sú verkmenn-
ing, seiii ég á við, en svo er þó ekki. Sú verkmenning, sem
ég tala hér um, er algerlega tengd við hin algengu daglegu
störf til sjós og sveitar, við vinnuna, eins og hún er unnin
af öllum fjöldanum, á vettvangi framleiðslunnar, án þess að
nokkurs sérnáms eða skólaundirbúnings sé krafizt. Þótt
þessi störf, ef til vill, þyki lítihnótleg og auðleyst af hendi
og séu yfirleitt unnin án langrar og kostnaðarsamrar skóla-
menntunar, þá eru það samt óneitanlega þau, sem öll þjóð-
félagsbyggingin hvílir á, og á því, hvernig þau eru af hönd-
um leyst, má bezl marka, hve rótgróin og traust menning
þjóðanna er.
Hið fvrsta, sem hver þjóð, er heita vill sönn menningar-
þjóð, verður að læra, er að bera tilhlíðilega virðingu fyrir
vinnunni.
I. Kunnátta og leikni.
UNNÁTTA er einn af höfuðþáttum verkmenningarinn-
J ar. Sumum kann að finnast þetta einkennileg staðhæf-
ing, því margir virðast þeirrar skoðunar, að til þess að vinna,
þurfi litla kunnáttu. Fjöldi manna hikar ekki við að bjóða
sig fram og krefjast fullra launa við vinnu, sem þeir hafa
aldrei snert á áður, með þeim forsendum, að vinnan sé svo
vandalaus og auðlærð, að það sé tóm hótfyndni, ef ekki
arðrán, að vilja draga af laununum, þótt verkamaðurinn liafi
aldrei séð eða reynt starfið áður. Þetta er þó liinn mesti mis-
skilningur, því það eru fá störf, sem eru svo auðlærð, að
ekki muni miklu, livort þau eru unnin af vönum eða óvön-
um manni, og allur fjöldinn af hversdagslegustu störfum
útheimtir margra ára æfingu, áður en við getum unnið þau
sæmilega hratt og sæmilega vel, og sumum störfum náum
við aldrei fullkominni leikni i, nema við nemum þau og æf-
um strax i uppvextinum. Það er því síður en svo, að vinnan
yfirleitt sé auðlærðari, heldur en ýms þeirra fræða, sem við
göngum á skóla lil að nema. Yfirleitt er hún svo vandlærð, að
hún verður eklci kennd til neinnar hlítar i skólum, þvi síður
158 JÖBÐ