Jörð - 01.08.1942, Side 43
sýnir, að það er íurðu lítið, seni þarf til. Maður, scm hraðar
sér milli Iiúsa, og finnst kalt, kallar sama veður ágætt eftir
klukkustundargöngu.
III.
SUMIR álíta, að fátt sé að sjá í nágrenni Reykjavíkur, þó
að hér sé raunverulega margt að sjá. En i grein þessari
skal aðeins drepið á þrennt, er kemur við jarðfræði nágrennis-
ins: fornar jökulmenjar, menjar eftir jarðelda, og menjar
þess, að sjórinn Iiefur áður sfaðið hærra við landið en nú.
ÞAÐ er kunnugt, að samfelldur jökull huldi norðurhlula
Evrópu fyrir tíu til tuttugu þúsund árum. Löngu er
það áður en sagnir hefjast, en þetta hefur mátt sjá á vegsum-
merkjum eftir jökulinn, svo sem ísnúnu grjóti, jökulurðum
og fleiru. En af samskonar ummerkjum hér á landi hefur
sézt, að mestur hluti landsins liefur verið jöldi hulinn, ]). e.
að liin svonefnda ísöld hefur lika gengið hér yfir. Má um stóra
hluta landsins sjá ísnúnar ldappir, og eru þær algengar liér
i nágrenninu. Má á því, hvernig gárurnar liggja, sjá í hvaða
ált jökullinn hefur runnið. En neðan á skriðjöklinum sat
gi'.jót, sem urgaði klappirnar undir. En þó skriðjöklar fari
ekki hratt, sumir nokkrar stikur á sólarliring, aðrir ekki hrað-
nr en Iitli vísir á úri, þá urgast samt klappirnar, þegar ald-
h'nar liða og áraþúsundin. En sums staðar urgar skriðjökull-
hin ekki, heldur ber undir sig, og verður þar botnurð eftir,
þegar jökullinn þverr. Ofl stendur jökulsporðurinn i stað,
um langan tima, af því það bráðnar jafn mikið af honum eins
°g hann gengur fram. Myndast þá oft háir garðar af sandi
°g grjóti fyrir framan hann, af því sem jökullinn her fram,
°g bera þessir garðar löngu síðar vitni um, hvar jökulsporð-
ói'inn hafi eitl sinn verið. I Norður-Þýzkalandi eru slikir jök-
l|lgarðar, er bera vitni um, að skriðjöklarnir frá Noregi og
^víþjóð hafi, þegar hæst stóð isöldin, náð vfir Skagerak og'
Eattegat, dönsku eyjarnar og Eystrasalt, alla leið þangað
suður.
I3að bar við f\ rir eitthvað tiu eða tólf árum, er ég var á
gangi fyrir sunnan Hafnarfjörð, að ég sá þar einkennilega
Jöro 169