Jörð - 01.08.1942, Qupperneq 44
lagaðan mel. Var ég þá staddur á holtinu norðan og vestan
við Hvaleyrarvatn. Datt mér þá i hug, að þetta væri forn jök-
ulurð, en af því ég sá þarna ekki nema lítinn l)út (ef svo má
að orði kveða), er gæti verið jökulurð, hélt ég leiðar minnar.
En er ég var kominn yfir í Stórhöfða, og var staddur einni til
tveim röstum sunnar, miátti sjá, að þetta var meira en bútur,
og er þarna enda-jökulurð, sem rekja má nokkrar rastir
vfir liolt og hæðir. Hún hverfur undir Gráhelluhraun, en
kemur aftur í ljós á hæðinni liandan við það. En það, að
hún nær vfir holt og liæðir, sýnir, að jökulröndin hefur
verið þarna geysihá, og hreyfing litil á jöklinum. Ef til vill
liefur verið þarna kyrstætt jökulbjarg, er náði yfir lmndrað
rasta (eða nokkur hundruð ferrasta) svæði. Slík kyrrstæð
jökulbjörg eru vel kunn t. d. frá Alaska, og eru levfar af
eldri jökulkerfum og stærri.
EGSUMMERKI jarðelda eru mikil í nágrenni Reykja-
* víkur. Margir liafa komið í Rauðhóla, og séð gígana
þar, sem hafa víst aldrei verið taldir. Frá Rauðhólum hefur
runnið hraun um nágrennið og niður farveg Elliðaánna, og
því lieita árnar í fleirtölu, að valnið rennur báðu megin við
storknaðan hraunstrauminn, en hann er þar, sem áður rann
vatnið.
Hvenær gusu Rauðhólar? Það má sjá, að það er eftir ísöld.
Hraunið er þarna ekki ísnúið, og gígarnir sjálfir bera flestir
Jjess vitni, að þeir liafa orðið til eftir ísöld. A, að minnsta
kosli einum stað, má sjá, að hraun liggur ofan á moldarlagi,
og hefur því runnið all-löngu eftir, að isinn þvarr í nágrenn-
inu. Og af því moldin er ekkert samanrunnin, virðist ekki
geta verið mörg þúsund ár síðan ])etta hraun rann (hraun-
lagið er reyndar þunnt þarna, og þyngslin því ekki mikil) •
Ekki hafa allir gígar þcssir gosið í einu; miklu frekar hefur
liver tekið við af öðrum. Nýtt oj) myndazt, og nýr gígur,
þegar einn stíflaðist. Eftir að farið var að grafa í þessa gíga,
til þess að taka þar ofaniburð, má sjá, að sami gígur hefui’
gosið oftar en einu sinni, með löngu millibili. Gostímabil
Rauðhóla hefur því staðið um langan tíma, og meira en eitt
170 jörð