Jörð - 01.08.1942, Side 45

Jörð - 01.08.1942, Side 45
hraun runnið frá þeini niður Elliðaárfarveg. En eru þeir alveg hættir? Því er ekki gott að svara, en líklegra, ef þeir eru ekki hættir, að gos verði eftir tvö hundruð ár, eða fimm hundruð ár, en að það verði á morgun. MARGIR hafa tekið eftir sandnámn bæjarins inn við Elliðaár. Þar er smágerr og' grófgerr sandur í óreglu- legum lögum, en sumsstaðar moldarlög á milli. Sá, sem skoð- ar sand þennan, og möl, sér, að þetta er nákvæmlega sams- konar, og sjá má í fjörum framan við lækjar- eða árósa. En ef einhver efaðist um að þetta sé árframburður, sem hlað- ist hafi upp í sjó, mætti sýna honum skeljar, sem stundum finnast þarna í sandinum. Eina skýringin á þessu er, að sjórinn hafi staðið hærra við landið, þegar lög þessi mynd- uðust, en nú. Þess eru líka mörg vegsummerki, hér í ná- grenninu, að svo hafi verið. Sjórinn hefur lengst af, þegar lög þessi mynuðust, verið um 40 stikum hærra við strönd- ina, en nú, Elliðaárnar (eða áin, sem þá mun hafa verið) hafa fallið til sjávar, niður undan Árbæjartúninu, sem nú er. Þessa fjörutíu stikna fjöruhorðs gætir mjög víða í ná- grenninu. Það sézt greinilega úr Reykjavík, eftir Öskjuhlíð- ■nni endilangri, og er sérlega eftirtektarvert vestan á henni, við Reneventnm-klettana, er áður voru nefndir. Þegar Reykjavíkur-höfn var gerð, var tekið efni til hennar úr Skólavörðuholti, sjávarmöl, sem var frá þeim tíma, er sjór- inn stóð þelta hærra. Mátti þar sjá, að möl þessi lá ofan á isnúinni klöpp, og þar með það, að þetta myndaðist eftir isöld. Eg hef heyrt dr. Helga Pjetnrss áætla, að þetta fjöru- i)r)rð hafi verið fyrir sex þúsund árum, og mun mörgum bykja það nærri sanni. Vikur og evjar voru þá ólíkar því, sem nú er hér i nágrenninu. Mestur hluti Seltjarnarness (og öll Reykjavíkurborg, eða svæði það, sem hún stendur á), var þá í kafi og allt Álftanes, og allar eyjar sem nú eru. Hfsti hluti Lauganeslioltsins og Rauðarárholtsins voru eyj- ar- Sennilega var efsti hluti Langholts, Geldinganess, og hæð- arinnar vestan við veginn á Digraneshálsi, litlar eyjar, eða graslaus sker. Efsti hluti Skólavörðulioltsins var sker, sem Jörð 17]

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.