Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 11
yrði raunverulega veigaminni en sambandið við Dani var
síðasta áratuginn fyrir stríð. Það er vonandi, að íslandi
verði í sjálfsvald sett, hvort það t. d. vilji vera í banda-
lagi við Norðurlöndin eða Brezka heimsveldið eða Ameriku
— eða hvernig svo sem þeim handalögum kann að verða
niðurskipað. Það gæti kannski aðeins hugsazt, að vegna
einangraðrar legu landsiris, svo að segja mitt á milli Norð-
urlanda, Bretlandseyja og Norður-Ameríku, gæti hrein
undantekning komið til greina,, að því er Island snertir,
og að það fengi, ef það vildi, að standa utan við öll banda-
lög eða að taka þátt í þeim á vissan hátt sitt á hvað eftir
málefnum. En það verður að gera sér ljóst, að undan-
tekning er meira en hæpin og að kasti ísland samúð ná-
granna sinna að verulegu leyti á glæ, þái gæti sú undan-
tekning iekið á sig mynd niðurdrepandi einangrunar, —
og í þriðja lagi, að verði slík undantekning gerð af góð-
um huga, þá mun felast í henni sú eftirvænting, að ís-
lendingar noti aðstöðu sína til að vera milligöngumenn
milli Vesturheims og Norðurálfu, milli norræns og engil-
saxnesks og þýzks.
En setjum nú svo, sem líklegra er, að hvorki fáum vér
undantekningaraðstöðu né heldur sæjum vér oss hag í
að þiggja hana. Þá verða þeir, sem telja efnilegast fyrir
Island að ganga í norrænt bandalag, að gera sér ljóst, að
það væri óheppilegur undirbúningur að ganga þannig frá
Dönum, að þeim þætti vér helzt ekki samnings- né sam-
talshæfir. Og það væri líka ólieppilegur undirbúningur,
að hinar norrænu þjóðirnar litu svo á, að vér hefðum
brotið alvarlega á móti þeim sambúðarvenjum, sem þær
^elja óaðskiljanlegar ekki aðeins frá norrænu samfélagi,
heldur yfiríeitt vinsamlegu samfélag'i siðaðra þjóða —
auk þess sem Svíar, Finnar og Norðmenn munu orðnir fun-
heitir Danavinir yfirleitt, af ástæðum, sem allir þekkja og
virða. Væri það nú samhoðin byrjun, íslenzka „lýðvekl-
inu“, að alla setti hljóða og vandræðasvipur færðist vfir
ulla fulltrúa, þegar islenzku fulltrúarnir kæmu á sam-
norrænan fund? Úrlausn mála gæti beinlinis skaðazt í
Jönn 263