Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 41
nýrri prentsmiðju. Af því varð þó ekki. Efnt var að vísu
til nýrrar prentsmiðju, með hlutafjársöfnun, en gekk
seinna en til var ætlazt, ýmsra Iiluta vegna. Úr þeirri nýju
prentsmiðju fæddist svo blaðið „Vesturland“, og var það
ávallt óviðkomandi útgefanda „Vestra“.* *
££ VALURINN. Snemma árs 1906 tók að vakna hreyf-
ing hjá ýmsum þáverandi stjórnarandstæðingum í
Norðursýslunni og á ísafirði, um að hleypa af stokkun-
um nýju stjórnmálahlaði á ísafirði. Umtal um þetta mun
og hafa verið uppi syðra, og veit eg ekki gerla, hver upp-
tökin hefur átt. Varð það úr, að Jónas Guðlaugsson, er
þá var við nám í menntaskólanum og vakið hafði á sér
eftirtekt sem einkar efnilegt ljóðskáld, skyldi verða rit-
stjórinn. Hóf blaðið síðan að koma út 23. Agúst 1906. Rit-
stjóri og eigandi var talinn Jónas Guðlaugsson, meðrit-
stjóri Guðm. Guðmundsson cand. phil. (skáldið góðkunna).
Þetta nýja hlað nefndist „Valurinn“.
Var tilætlunin sú, að blaðið skyldi þegar fá nýja prent-
smiðju. Gerðust þá nokkrir efnaðir áhugamenn úr sýsl-
unni og hænum, er töldust til flokks stjórnarandstæð-
inga, ábyrgðarmenn að 4000 króna láni, sem ætlast var
til, að varið yrði til prentsmiðjukaupanna. Voru meðal
frumkvöðlanna Pétur kaupmaður Oddsson í Bolungavík,
Sigurður A. Kristjánsson, úrsmiður á Isafirði, Jóakim Jóa-
kimsson, Sigfús H. Bjarnarson, konsúll o. fl. Auk þess
hafði verið skotið saman nokkru fé til þess að koma blað-
* í síðasta tbl. „Vestra“ fær árið 1918 m. a. þessi eftirmæli:
»,... eitthvert stórfenglegasta ár, sem yfir veröldina hefur gengið.
Það verðskuldar mikil eftirmæli ... sagan mun geyma nafn þess
• •. á voru landi eigi livað sízt. — Hér á landi byrjaði það með
heljarfrosti; sumarið ógnaði hændum ... með óskaplegum gras-
bresti. Og undir áramótin ... einhver skæðasta drepsótt, er hér
hefur gengið. ... En tveir atburðir „lýsa sem leiftur um nótt“:
Island hefur stigið sitt þýðingarmesta spor síðan á 13. öld, fengið
aldalöngum kröfum fullnægt og byrjar nú nýja sögu. Og ófriðnum
mikla er létt af — allir vona að fullnustu ... Jólahátíðin gengur
í garð. ... Hamingjan gefi þjóð vorri farsælt komandi ár!“
Jörð 293