Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 53
margir kvenna-háskólar, en það má þó teljast undantekn-
ing fremur en regla, að konur nemi sér. Hef eg heyrt
márga Evrópu-stúdenla, sem hingað koma, undrast og
dást að því, hve frjálslega karlar og konur umgangast
í námi, leikjum og starfi.
Þá er hinn mikli félagsskapur nemenda einkennandi
fyrir þetta land. Oft er háskólinn svo mikil lieild út af
fyrir sig, að nemendur leita sér varla skemmtana og starfs
utan iians. Of langt 37rði upp að telja öll þau félög stú-
denta, sem úr er að velja. Hverjum er frjálst að velja
og liafna. Þó er sumstaðar sú krafa, að hver nemi taki
þátt í einu eða tveimur félögum, en flestir eru í fleiri.
Þessi félög liafa vaxið upp af þörf nemendanna og í trássi
við yfirmenn skólanna lengi vel. Nú liafa þau unnið sér
fylgi og viðurkenningu allra vegna liins mikla menn-
ingar- og félagsgildis þeirra. Það skilst æ betur, að með-
ferð tómstunda veldur miklu í lífi unglinga. Þar sem Iiver
stund er helguð göfgandi starfi og heilbrigðu félagslifi,
er iðjuleysinu útrýmt og öllum þess leiðu fylgifiskum.
Trúarlireyfing virðist hraðvaxa. Víða var verið að hætta
daglegum samkomum í kapellum háskóla vegna lítillar
aðsóknar. Háskólinn í Toledó og fleiri geta nú um nýjan
trúar-áhuga meðal stúdenta. Mun það stafa af undir-
stöðu- og öryggisleysi manna á öllum sviðum hvarvetna
um lönd.
Ögleymanleg eru alþjóðafélögin við háskólana, þar sem
sýnishorn af öllu fólki í heimi er saman, oft um 40 þjóð-
erni. Hefur þar hver eitthvað nýstárlegt fram að leggja.
Er það eitt af merkum verkefnum Bandaríkjanna að
draga að allt hið bezla i störfum og siðum allra þjóða.
Starfið i klúbbunum er oft í sambandi við námið. Sjón-
leikir eru samdir og' leiknir með hjálp kennara, og er oft
margþætt nám í sambandi við það. Margir háskólar eiga
prentsmiðjur, og er það oft mikil lyftistöng náminu og
háskólastarfinu í lieild. Vandfundinn mun sá staður, þar
sem íþróttalíf er eins mikill liluti af háskólalífinu og liér.
tJtléndingi verður starsýnt á íþróttavellina, sundskálana
jörð 305
20*