Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 49
aði ogýmislegt annað í blaðið, oftast nndir dulnefni, eink-
um stjórnmála- og atvinnumálapistla.
Arngrímur prentaði blaðið og annaðist útsending þess
og reikningsliald. Kaupendatala „Dags“ var nálægt sex
bundruð í byrjun. Yfirleitt fylgdi „Degi“ ekki jafnmikill
gustur og „Valnum“ áður, enda mun bann engu stofnfé
bafa baft úr að spila. Var og mikið minna blað, og lilaut
að takmarka útkomu sína eftir því, sem innheimtist fvrir
auglýsingar og áskriftargjald. Ljóð Guðmundar öfluðu
blaðinu virisælda fyrst í stað og landsmálastefna þess
dró nokkuð að því, en liratt öðrum frá, eins og títt er
um stjórnmálablöð. (Frh.)
YNGRI KYNSLÓÐIN RÆÐIR PÓLITÍK 1901
PÁLL (7 ára) hafði brugðið handleggnum yfir um herðarn-
ar á Pétri (6 ára), en Pétur tekið um mittið á Páli, og
þannig gengu þeir af stað niðursokknir í viðræður. Það var
daginn sem þeir kynntust. „Ert þú ekki Valtýingur?" spurði Páll.
„Nei, ég er heimastjórnarmaður," svaraði Pétur. „Ert þ ú Val-
týingur?" spurði hann því næst með hálfum huga, því hann hafði
haldið, að það væri mikil hneisa að vera Valtýingur. „Já, auð-
vitað,“ svaraði Páll. „Pabbi er Valtýingur og Björn Jónsson er
Valtýingur.“ — „Nú-ú?“ svaraði Pétur. Ilann fnnn, að þetta voru
veigamiklar röksemdir, cn bar hinsvegar ekki fullt skyn á þær,
einkum vegna þess að hann mundi ekki til, að hann hefði heyrt
n.nfn Björns Jónssonar áður (þetta var líka langt f.rá Beykja-
vík), en honum hey.rðist á Páli, að það væri allraveigamesta
röksemdin. Allt í einu datt honum í hug ráðning gátunnar (það
skal tekið fram, að hann var nýfluttur til landsins' frá Danmörku)
og hann gall við: „Nú sé ég það! Heimastjórn er bezt i öðrum
löndum. Pabbi minn var í Kaupmannahöfn og þess vegna var
hann heimastjórnarmaður. En á íslandi er Valtýzka bezt.“ Páll
leit á Pétur með svip sem þetta væri alkunnugt mál og sagði: „Já,
Pabbi hefði auðvitað verið heimastjórnarmaður, ef hann hefði
átt heima i útlöndum, en það á ekki við á íslandi."
JÖRn
301