Jörð - 01.10.1943, Side 59
og liver vill. Eemur það sér vel fvrir þá, sem verða að
vimia með náminu, og eins fyrir þá, sem eru heilsuveilir.
Margvíslegt fyrirkomulag er á vali námsgreina. Tvær
eða þrjár námsgreinar eru sjálfsagðar sem aðalnám, en
oftast er mikið frelsi um val liinna. Hver nemandi hefur
sinn leiðtoga, sem gefur ráð og bendingar.
Röskum nemanda er oflast fært að ná magisters gráðu
(masters degree) á einu ári eftir fyrstu gráðu, og doktors
gráðu tveimur eða þremur árum þar á eftir. Fer það eft-
ir þvi, hvert námið er.
HÉR liefur orðið að slilda á stóru, og' drepa á margt,
sem liefði þurft að gera hetri skil, og sleppa öðru
stórmerku, eins og foreldrafélögunum, sem þetta land
liefur átt upptök að og hafa nú milljónir félaga. Eru þau
líkleg til að hreyta uppeldi og bæta það öðru fremur.
Þrátt fyrir allt þetta vona ég, að þessi smágrein megi
verða einhverjum til fróðleiks, eða a. m. k. til þess að
vekja löngun til fróðleiks.
New York, 31. Júlí 1943.
SAGAN
SEM hefst á næstu opnu, er af gömlum innflytjanda úr Þýzka-
landi til Bandarikjanna og vandamönnum hennar þar og er
tekin hér m. a. til þess að ná verulega hugðnæmri sögu í væntan-
legt jólahefti. En þar kemur seinni hluti hennar. — í þessú sam-
bandi dettu.r oss í hug annar innftytjandi frá Norðurálfu, sem líka
niætti skrá hugðnæma sögu af, en mjög ólíka: Ingrid Bergman (sbr.
næstu síðu). Sterkasta kvikmyndafélagið i Hollywood hafði miss-
irum saman gert allt, sem í þess valdi stóð, til að freista henn-
ar með fé og frægð — hún leit ekki við því. Þá sendi það til
hennar einhverja hugþekkustu konu Bandaríkjanna, er fullvissaði
hana um, að hún skyldi fá að vera liún sjálf í hvívetna — jafnvel
fá betri tækifæri til þess en nokkru sinni fyrr. Þetta þekktist Ingi-
ríður. Og í sumar vann hún þann sigur í kvikmynd Hemingway’s,
„Fo.r Whom the Belts Tolls“ (úr borgarastyrjöldinni á Spáni), að
ekkert þvilíkt þykir hafa sézt, siðan landi hennar, Greta Garbo,
vann sin mestu afrek — og mun Ingiríður þó bera langt af henni
i sannri tjáningu.
Jörð 311