Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 45
„Valiirinn“ flutti og hokkrar greinir uni héraðsmál og
framfaramál ísafjarðar. Meðal annars er þar grein um
skipakví á ísafirði, eftir „borgara“. Þar er því lialdið
fram, að hyggja heri skipakví og bryggju utan við Tang-
ann, en slík hafnarvirki komi ekki að notum inni á Polli.
Var þelta mál lengi deiluefni milli bæjarhúa.
Segir þar in. a.: „í engu siðuðu íandi mundii annað koma lil mála
en þing yrði rofið, þegar svona mikilsvert mál ber að höndum:
þegar er að ræða um stefnu og kosningu þeirra manna, sem eiga
að semja fyrir heila þjóð þá samninga, er gilda fyrir aldur og æfi.
Og það því fremur sem þiingmennirnir standa andvígir þjóðinni og
skoðunum hennar.“ — I 26. tbl. svarar „Valurinn" „Vestra“ um
þingrofskröfuna og segir m. a.: „Þegar „Vestri“ er búinn að sýna
fram á sakleysi stjórnarinnar og ribbaldaskap ávarpsmannanna á
Jiann hátt, sem fyrr segir, þá sezt hann fyrst alvarlega á rökstóla,
og nú á svo sem að ríða þingrofskröfunni að fullu! — En þar
hefur stjórnin lagt of þungar byrðar á aumingja „Vestra“, svo hann
siigast og verður að líkindum aldrei jafngóður. Sorgleg meðferð
•á okkar mannúðartímum! ... Það er heldur ekki von, að hann
á sinum fjórum geti borið jafnmikið og tólffætta dýrið. [í „Þing-
rofs“grein „Vals“ var sagt frá því, að 12 þingmenn stæðu stjórnar-
niegin í þessu máli, í andstöðu við ,,Blaðamannaávarpið“.] ...
Vér láum ekki „Vestra“, þó honum hafi tekizt illa að verja þing-
rofsneitunina, ... því til þess þarf bæði afburða vit og sótsvarta
samvizku, — en það hefur riitstjóri „Vestra“ hvorugt." — [Er þing-
rofskrafan var að engu höfð, kom fram hugmyndin um „Þingvalla-
fund“, sem og varð framkvæmd, og segir „Valurinn“ um hana m. a.
(35.—36. tbl.): „Á Þingvöllum, forna, örlagaríka sögustaðnum, ætti
fundurinn að vera. Það væri ... hollt fyrir alla sanna íslendinga
að ráða þar ráðum sínum.“ — í 42. tbl. er grein, sem nefnist „Þing-
vallafundi andæft". Þar segir m. a. svo: „Það var svo sem auð-
vitað, að stjórnarblöðin mundu andæfa Þingvallafundlinum ... Fyrsta
og sjálfsagt veigamesta ástæðan á að vera sú, að fuiulurinn sé til
þess að veikja traust löggjafarþingsins, en söniu blöð játa í sömu
andrá, að þingvallafundirnir gömlu hafi verið 1 i 1 þess að styrkja
ráðgjafarþingið. ... Hvað halda menn að eigi að gerast á Þing-
völlum? Þar á þjóðin að láta uppi vilja sinn. ... Er vilji þjóðar-
innar hneykslanlegri fyrir það, að hann kemur frain á almennum
fundi á Þingvöllum, heldur en ef hann kemur frá smáfundum í
hverju héraði fyrir sig? ... Öðrum ástæðum stjórnarliða, eiins og
t. d., að Þingvallafundur sé þýðingarlaus, ætlum vér ekki að svara
saga þéssa lands tekur líka það ómak af oss. ... Engum ætti
Jörd 297